Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 418 . mál.
Nd.
1293. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 73 frá 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands.
Frá 2. minni hl. allsherjarnefndar.
Annar minni hl. er andvígur því að ráðuneytum verði fjölgað eins og lagt er til í þessu frumvarpi.
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa á þessu þingi flutt frumvarp um samræmda stjórn umhverfismála (230. mál) þar sem lögð er til skynsamleg stjórnskipan umhverfismála án þess að fjölga ráðuneytum. Við undirritaðir teljum að þær tillögur feli í sér mun hagkvæmari og skilvirkari skipan stjórnkerfis umhverfismála en lagt er til í þessu stjórnarfrumvarpi.
Annar minni hl. leggur til að frumvarpið verði fellt.
Alþingi, 19. maí 1989.
Valdimar Indriðason,
Kristinn Pétursson.
frsm.