Lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks
Fimmtudaginn 09. nóvember 1989


     Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Svar hæstv. fjmrh. vekur upp spurningu um framkvæmd þál. yfirleitt. Ég vil minna á að hér var lögð fram beiðni um skýrslu á síðasta þingi um framkvæmd þál. síðustu fimm árin og mun hún verða lögð fram aftur á þessu þingi. En ég vil taka undir með hv. fyrirspyrjanda og hv. 10. þm. Reykv. að hér er um mikið réttindamál að ræða og því full ástæða til þess að fara að vilja Alþingis og gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til þess að þál. þessi komist í framkvæmd.