Guðrún Agnarsdóttir:
Virðulegur forseti. Aðeins örfá orð. Ég held að gagnrýni mín hafi verið á rökum reist. Ég veit ekki betur og hef ráðfært mig við aðrar kvennalistakonur hér. Okkur hefur ekki borist nein reglugerð frá fjmrn. Og þó svo hefði verið þá eru samt veigamiklar ákvarðanir sem enn hafa ekki verið teknar í málinu og þess vegna er nauðsynlegt að kalla saman fund með fulltrúum stjórnarandstöðu. Ég vil ítreka þetta. Þess vegna tel ég að gagnrýnin hafi í raun verið á rökum reist.