Tekjuskattur og eignarskattur
Föstudaginn 22. desember 1989


     Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Guðrún Agnarsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. á þskj. 416 og brtt. á þskj. 417 sem fluttar eru af Guðrúnu Agnarsdóttur og Danfríði Skarphéðinsdóttur.
    Á nál. kemur fram að þingflokkur Kvennalistans getur ekki stutt þetta frv. í núverandi mynd en leggur til brtt. sem spegla ljóslega stefnu okkar varðandi skattlagningu einstaklinga og fjölskyldna. Ég mun því til að stytta mál mitt og lýsa afstöðunni í raun til þessa frv. fara lítillega yfir brtt. sem við leggjum fram. Þær hníga í þá átt að létta skattbyrði og munu því draga úr tekjum ríkissjóðs, en fyrir þessum brtt. eru þó mörg rök.
    Í fyrsta lagi ber að nefna að Kvennalistinn telur að stjórnvöld hafi nú þegar seilst allt of langt ofan í vasa lágtekju- og meðaltekjufólks. Skattbyrði hefur þyngst á sama tíma og kaupmáttur launa hefur rýrnað að mun. Auknum skattaálögum er að sönnu ætlað að auka tekjur ríkisins og þar með að minnka halla ríkissjóðs. En staðreyndin er sú að fjölmörg heimili eru nú þegar rekin með halla og geta hreinlega ekki risið undir meiru.
    Í öðru lagi má fullyrða að þær tekjur, sem ríkið missti ef brtt. Kvennalistans yrðu samþykktar, væru ekki með öllu glataður eyrir. Þær mundu að stórum hluta skila sér eftir öðrum leiðum, m.a. gegnum óbeina skatta þar sem fólk hefði hærri ráðstöfunartekjur.
    Í þriðja lagi má benda á að nú þegar eru samningar ríkisins og BSRB lausir og aðrir fylgja í kjölfarið. Lækkun skatta, hækkun persónuafsláttar og barnabóta væri verðugt innlegg stjórnvalda í þá kjaramálaumræðu sem fram undan er.
    Í fjórða lagi hafa kvennalistakonur lagt mikla áherslu á að annað og hærra tekjuskattsþrep verði tekið upp og við viljum minna á þau fyrirheit sem fjmrh. gaf þegar hann mælti fyrir breytingum á tekjuskatti og
eignarskatti í desember 1988 um að hátekjuþrep yrði tekið upp í tekjuskatti. Það olli því nokkrum vonbrigðum að sú breyting skyldi ekki lögð til í þessu frv. Þótt hærra tekjuskattsþrep sé ekki lengur að finna á óskalista fjmrh. samkvæmt athugasemdum með frv. er þessi möguleiki vissulega fyrir hendi til að auka tekjur ríkisins ef áhugi er á.
    Ég vil þá lítillega fara í þessar brtt. sem varða í fyrsta lagi tekjuskattshlutfallið, persónuafslátt og skattleysismörk, hlutfallshækkun á barnabótum, barnabótaauka og persónuafslætti og tekjutengdar álögur eignarskatts í efra þrepi, auk þess sem við leggjum til að persónuafsláttur og barnabætur verði miðaðar við framfærsluvísitölu en ekki skattvísitölu sem ákveðin er í fjárlögum hvert ár.
    Það er þá fyrsta brtt.: Í henni felst að færa tekjuskattshlutfallið aftur í 28,5%. Það ákvæði sem sett var til bráðabirgða í lögum nr. 97/1988, um að tekjuskattur manna reiknist 30,8% af tekjuskattsstofni

við staðgreiðslu opinberra gjalda á árinu 1989 og við álagningu tekjuskatts á árinu 1990 vegna tekna ársins 1989, rennur út 1. jan. 1990. Því er í þessu frv. ríkisstjórnarinnar verið að leggja til 4,3% hækkun á skatthlutfalli en ekki 2% hækkun eins og látið er í veðri vaka. Kvennalistinn leggur til að skatthlutfallið verði óbreytt eins og lög gera ráð fyrir.
    Önnur brtt.: Þar er lagt til að persónuafsláttur hækki í 300 þús. kr. í stað 250.200 kr., þ.e. í 25 þús. á mánuði í stað 20.850 kr. Við þessa breytingu yrðu skattleysismörkin rétt um 63 þús. kr. á mánuði. Þessi hækkun persónuafsláttar vegur langþyngst hjá lágtekjufólki og síðar æ minna eftir því sem ofar dregur og er því það sem lág- og meðaltekjufólk munar mest um. Kvennalistinn vill réttlátt samhengi milli skattleysismarka og lágmarksframfærslu. Þótt ljóst sé að með brtt. þessari verði því marki ekki náð er stigið skref í rétta átt.
    Aðrar breytingar sem Kvennalistinn vill gera í tengslum við persónuafslátt koma fram í sérstöku frv. á þskj. 354 sem þingkonur Kvennalistans í Nd. hafa lagt fram.
    Þriðja og fjórða brtt.: Kvennalistinn leggur til sömu hlutfallshækkun á barnabótum og barnabótaauka og persónuafslætti. Allur kostnaður af framfærslu barna hefur hækkað í samræmi við annað og má þar nefna hækkun á matvöru, dagvistargjöldum, vöruverði almennt. Kvennalistanum er ljóst að sú hækkun sem við leggjum til er umfram verðlagsþróun. Kvennalistinn telur hins vegar að skerfur hins opinbera til barnafjölskyldna í landinu hafi síst verið of stór og telur rétt að bæta þar um. Að mati okkar er ekki rétt að tengja barnabætur sköttum með þeim hætti sem sífellt er gert í opinberum útreikningum um skattbyrði. Þær aðferðir eru einungis til þess fallnar að villa um fyrir fólki. Þessari fullyrðingu til staðfestingar má benda á síendurtekna útreikninga sem gætu bent til að þorri fjölskyldna í landinu væru foreldrar eða foreldri og tvö börn, annað undir sjö ára aldri, eins og ég minntist á í 1. umr. um þetta mál. Því lét Kvennalistinn reikna nokkur dæmi þar sem barnabætur eru ekki teknar með í reikninginn og þau má sjá í fskj. með nál. í
Nd. sem er á þskj. 352.
    Þá er það fimmta brtt. og hún varðar eignarskatt. Í frv. eru eignarskattsálögur færðar til betri vegar og vill Kvennalistinn í því sambandi benda sérstaklega á það nýmæli að tekjutengja álögur eignarskatts í efra þrepi. En eitt er þó ógert: Samanlagður eignarskattsstofn hjóna sem lagður er til grundvallar álagningu er alltaf helmingi hærri en einstaklinga og einstæðra foreldra. Í þessu felst nokkurt óréttlæti þar sem ekki er sjálfgefið að einstaklingar eða einstæðir foreldrar geti alltaf látið sér nægja helmingi minna húsnæði en hjón eða sambýlisfólk. Dýrustu hlutar hvers húsnæðis þurfa líka að vera í húsnæði einstaklinga og einstæðra foreldra. Því sýnist Kvennalistanum réttlátt að einstaklingar og einstæðir foreldrar væru 60% ígildi hjóna hvað eignarskattsstofn áhrærir. Í samræmi við þá skoðun sína vill

Kvennalistinn hækka þann eignarskattsstofn sem enginn eignarskattur er greiddur af upp í 3 millj. 450 þús. hjá einstaklingum og einstæðum foreldrum en halda honum óbreyttum hjá hjónum, þ.e. 2 millj. 875 þús. hjá hvoru. Hvað efra þrepið varðar heldur Kvennalistinn eignarskattsstofni einstaklinga og einstæðra foreldra óbreyttum, þ.e. 8 millj. 50 þús. kr. en lækkar eignarskattsstofn hjóna niður í 6 millj. 708 þús. kr. hjá hvoru um sig. Tekjuviðmiðun í efsta þrepi helst óbreytt.
    Síðan vík ég að vísitölunum en um þær fjallar sjötta brtt. Kvennalistinn telur brýnt að hætt verði við að miða breytingar, m.a. á persónuafslætti og barnabótum, við skattvísitölu sem ákveðin skal í fjárlögum ár hvert. 14. gr. þessa frv. tekur til 122. gr. laganna. Brtt. Kvennalistans felur í sér að þær upphæðir sem samkvæmt henni eiga að hækka eða lækka í samræmi við skattvísitölu miðist framvegis við framfærsluvísitölu. Þar til breytingar voru gerðar á tekjuskatts- og eignarskattslögunum í desember 1988, miðuðust þessar tölur við lánskjaravísitölu. Kvennalistinn telur það ekki ráðlegt lengur vegna þeirra breytinga sem hafa verið gerðar á henni. Nú vega laun þriðjung í útreikningi lánskjaravísitölu og hækkar hún því minna en ella hefði orðið. Hún mælir ekki lengur kostnað í sama mæli og áður þar sem laun hafa ekki hækkað í samræmi við aðrar hækkanir. Því virðist Kvennalistanum framfærsluvísitalan nú vera vænlegri til viðmiðunar. Auk þess viljum við að persónuafsláttur og barnabætur hækki, nú eða lækki eftir atvikum, mánaðarlega í samræmi við framfærsluvísitölu. Þannig yrði komið í veg fyrir að skattbyrðin yrði sífellt þyngri í lok viðmiðunartímabils eins og nú er þegar breytingar á persónuafslætti eru aðeins gerðar tvisvar á ári og barnabætur mundu hækka í réttu hlutfalli við framfærslu.
    Lágtekju- og meðaltekjufólk, svo og barnafjölskyldur, eiga sér nú fáa málsvara, en í brtt. Kvennalistans felast mikilvægar breytingar til batnaðar til handa þessum hópum. Í þeim birtist það verðmætamat og sú forgangsröð sem Kvennalistinn leggur mikla áherslu á í stefnu sinni. Að öðru leyti vil ég vísa í vandað nál. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. Nd. á þskj. 352 eins og ég hef áður getið um.
    Verði þessar brtt. Kvennalistans samþykktar munum við þingkonur hans greiða atkvæði með frv. Að þeim felldum munum við þó greiða atkvæði gegn frv. í heild sinni. Ég hef lokið máli mínu, hæstv. forseti.