Evrópusamningur um varnir gegn pyndingum
Miðvikudaginn 24. janúar 1990


     Skúli Alexandersson:
    Herra forseti. Ég fagna þessu frv. en vil leggja aðeins eina spurningu fyrir hæstv. ráðherra. Hún er sú hvað hafi valdið því að þessi samningur hafi ekki verið lagður fyrir Alþingi fyrr en nú, þ.e. rúmum tveimur árum eftir að hann hlaut lokasamþykkt Evrópuráðsins.