Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 04. apríl 1990


     Ólafur G. Einarsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Á þskj. 726 hef ég ásamt hv. þm. Friðjóni Þórðarsyni og Inga Birni Albertssyni flutt nokkrar brtt. Ég vil upplýsa áður en atkvæðagreiðslan hefst að við köllum aftur til 3. umr. aðra brtt. á þessu þskj. en hún fjallar um það að brott falli 6.-14. gr. að báðum meðtöldum. Ég óska hins vegar eftir að atkvæði gangi um fyrstu brtt. sem varðar brtt. við 1. gr. frv. svo og að það verði greidd atkvæði um þriðju brtt. á þskj. 726 um að 18. gr. falli brott.