Forseti (Árni Gunnarsson):
Það er rétt að taka það fram að frekari atkvæðagreiðslur verða ekki hér í dag en samkvæmt samkomulagi við formenn þingflokka stjórnarandstöðu verður væntanlega kvöldfundur til þess að ræða fjöldamörg frv. frá hv. þingdeildarmönnum sem hafa kannski sum hver beðið allt of lengi.