Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 28 . mál.


Sþ.

28. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um virkjun við Búrfell.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



1.     Hvaða framkvæmdir hafa átt sér stað vegna nýrrar virkjunar við Búrfell?
2.     Hvaða áform eru uppi af hálfu Landsvirkjunar um frekari framkvæmdir og undirbúning vegna þessarar virkjunar, m.a. varðandi útboð og öflun tilboða?
3.     Hvaða aðilar hafa fjallað um og leyft þessar framkvæmdir og annan undirbúning vegna þessarar virkjunar sem Alþingi hefur ekki veitt heimild fyrir?