Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 55 . mál.


Sþ.

55. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um uppgjör á framkvæmdum á vegum sveitarfélaga á árinu 1989.

Frá Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni.



1.
    Hvernig er fyrirhugað að gera upp framkvæmdir umfram fjárveitingar 1989 hjá sveitarfélögum sem eiga vegna fámennis að njóta framlaga til framkvæmda úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þegar breytt verkaskipting milli ríkis og sveitarfélaga tekur gildi um næstu áramót?
2.
    Hvernig miðar setningu reglugerðar um þetta atriði og hvaða stærðarmörk eru hugsuð sem skilyrði fyrir framlögum?
3.
    Hvað er reiknað með að há upphæð verði til ráðstöfunar til þessa á næsta ári?



Skriflegt svar óskast.