Ferill 60. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 60 . mál.


Sþ.

60. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um reglugerð um kostnaðaruppgjör milli ríkissjóðs og sveitarfélaga.

Frá Birgi Ísl. Gunnarssyni.



    Hvað líður setningu reglugerðar um kostnaðaruppgjör ríkis og sveitarfélaga vegna áfallinna skuldbindinga ríkissjóðs við byggingu dagvistarheimila, grunnskóla, íþróttamannvirkja og félagsheimila, sbr. 5. mgr. 75. gr. laga nr. 87/1989, um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.