Ferill 83. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 83 . mál.


Sþ.

84. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um barnsburðarleyfi.

Frá Láru V. Júlíusdóttur.



1.    Hve margar konur í starfi hjá ríkinu fengu fæðingarorlof árin 1986, 1987, 1988 og fram til 1. október 1989?
2.    Hve háar fjárhæðir greiddi ríkissjóður vegna fæðingarorlofs árin 1986, 1987, 1988 og fram til 1. október 1989?
3.    Hve margar konur nýttu sér rétt til að taka lengra barnsburðarleyfi framangreint tímabil skv. 5. gr. reglugerðar um barnsburðarleyfi?