Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 203 . mál.


Sþ.

236. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um eignarskatta.

Frá Hreggviði Jónssyni.



1.    Hvernig skiptust milli einstakra kjördæma álagðir eignarskattar 1989 á þá aðila sem lagður var á sérstakur eignarskattur?
2.    Hvernig skiptist álagning þeirra í hverju kjördæmi fyrir sig milli:
    A.    fyrirtækja,
    B.    einstaklinga:
        a.    hjóna,
        b.    einhleypinga?
    Einnig er beðið um upplýsingar um fjölda í hverjum hópi fyrir sig.



Skriflegt svar óskast.