Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 284 . mál.
Sþ.
514. Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um afgreiðslu erlends gjaldeyris til einstaklinga.
Frá Guðrúnu Helgadóttur.
1 Hvaða reglur gilda um leyfilegar upphæðir í erlendum gjaldeyri sem einstaklingar sækja um vegna utanlandsferða?
2 Eru sambærilegar reglur í gildi varðandi afgreiðslu erlends gjaldeyris með greiðslukortum?
3. Hve háa fjárhæð afgreiddu bankar og sparisjóðir í ferðagjaldeyri árin 1988 og 1989?
4. Hversu mikil upphæð í erlendum gjaldeyri fór á sama tíma gegnum greiðslukortafyrirtækin?