Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 397 . mál.


Sþ.

693. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um niðurfellingu afnotagjalda Ríkisútvarpsins.

Frá Þórhildi Þorleifsdóttur.



1.    Hve margir einstaklingar fengu niðurfellingu afnotagjalda Ríkisútvarpsins sl. þrjú ár vegna óskertrar tekjutryggingar?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum.
2.    Eftir hvaða reglum er farið við ákvörðun niðurfellingar afnotagjalda?
3.    Hvernig er háttað endurskoðun á skrá yfir þá sem njóta niðurfellingar afnotagjalda?