Ferill 97. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 97 . mál.


Ed.

897. Nefndarálit



um frv. til l. um endurgreiðslu á gjaldi af erlendum lánum vegna skipasmíða hér á landi.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Umsagnir bárust frá Landssambandi iðnaðarmanna, Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja og Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri, auk þess sem upplýsingar um málið bárust frá Sambandi málm- og skipasmiðja.
    Ríkisstjórnin hefur þessi mál nú til sérstakrar skoðunar. Af þeirri ástæðu leggur meiri hl. nefndarinnar til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Guðrún Agnarsdóttir var fjarverandi afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. apríl 1990.



Guðmundur Ágústsson, form., frsm.


Jóhann Einvarðsson, fundaskr.


Skúli Alexandersson.


Eiður Guðnason.