Ferill 538. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 538 . mál.


Sþ.

935. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um viðhald á íslenskum flugvélum.

Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.



1.     Hversu mikill hluti viðhalds og viðgerða á íslenskum flugvélum og varahlutum í þær fer fram hér á landi?
2.     Hafa flugmálayfirvöld einhver áform um að auka þann hlut til þess að tryggja íslenskum flugvirkjum atvinnu hér á landi?
3.     Eru einhver vandkvæði á því að slíkt viðhald fari að mestu eða öllu leyti fram hér á landi?