Ferill 553. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 553 . mál.
Sþ.
953. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Frá Birgi Ísl. Gunnarssyni.
1. Hvert var efni þeirra breytinga sem gerðar voru á úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna 29. mars sl.?
2. Voru þær breytingar gerðar í samkomulagi við samtök námsmanna?