Ferill 562. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 562 . mál.


Sþ.

969. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um kaup Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina á B-hlutdeildarskírteinum Hlutafjársjóðs Byggðastofnunar.

Frá Friðriki Sophussyni.



    Hefur ríkisstjórnin beitt sér fyrir því að Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina breyti útistandandi lánum sínum hjá einstökum fyrirtækjum í B-hlutdeildarskírteini Hlutafjársjóðs Byggðastofnunar?
    Sé svo:
a.    Hve mörg fyrirtæki eiga í hlut?
b.    Um hve háa upphæð er að tefla?
c.    Er ætlun ríkisstjórnarinnar að beita sér fyrir því að breyta fleiri útlánum Atvinnutryggingarsjóðs í hlutdeildarskírteini?