Ferill 564. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 564 . mál.


Nd.

1007. Frumvarp til laga



um leikskóla.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989–90.)


I. KAFLI

Gildissvið.

1. gr.

    Lög þessi taka til starfsemi leikskóla. Leikskólinn skal annast uppeldi barna fram að skólaskyldualdri undir handleiðslu sérmenntaðs fólks í uppeldismálum. Leikskóli er samkvæmt lögum þessum fyrir börn frá hálfs árs aldri – eða frá þeim tíma að fæðingarorlofi lýkur – til sex ára aldurs.

II. KAFLI

Markmið

2. gr.

    Tilgangur laganna er að tryggja börnum rétt til umönnunar og öruggra uppeldisskilyrða.
    Leikskólinn skal í samráði við foreldra veita börnum á leikskólaaldri uppeldi og menntun.
    Samkvæmt lögum þessum skal meginmarkmið með uppeldisstarfi í leikskóla vera:
—     að búa börnunum örugg leikskilyrði og hollt uppeldisumhverfi,
—     að gefa börnunum kost á að taka þátt í leik og starfi og njóta fjölbreyttra uppeldiskosta barnahópsins undir leiðsögn fóstra,
—     að kappkosta í samvinnu við heimilin að efla alhliða þroska barnanna í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins og leitast við að hlúa að þeim andlega og líkamlega svo að þau fái notið bernsku sinnar,
—     að stuðla að umburðarlyndi og víðsýni barnanna og jafna uppeldisaðstöðu þeirra í hvívetna,
—     að efla kristilegt siðgæði barnanna og leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, hugsandi, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri og sífelldri þróun,
—     að rækta tjáningar- og sköpunarmátt barnanna í þeim tilgangi að styrkja sjálfsmynd þeirra, öryggi og getu til að leysa mál sín á friðsamlegan hátt.

III. KAFLI


Hlutverk sveitarfélaga.

Stofnun og rekstur leikskóla.

3. gr.

    Til að tryggja þann rétt barna, sem getið er um í 1. mgr. 2. gr., skal stofna leikskóla. Stofnun leikskóla og rekstur er á ábyrgð sveitarfélaganna en fagleg yfirstjórn málaflokksins samkvæmt lögum þessum er á hendi menntamálaráðuneytis.
    Sveitarfélag gerir árlega könnun á því hversu margir foreldrar óska eftir leikskólavistun. Á grundvelli þeirrar könnunar verði gerð áætlun um uppbyggingu leikskóla í viðkomandi sveitarfélagi til a.m.k. tveggja ára í senn. Sveitarfélögum er samkvæmt lögum þessum skylt að hafa forustu um að tryggja börnum þann lögvarða lágmarksrétt til þjónustu sem lög þessi gera ráð fyrir. Til þess að setja á stofn leikskóla þarf starfsleyfi frá menntamálaráðuneytinu. Heimilt er að veita leikskóla starfsleyfi þótt börnin dvelji þar ekki daglega eða einungis hluta úr ári.

4. gr.

    Í samráði við hlutaðeigandi sveitarfélag er öðrum aðilum heimilt að reka leikskóla. Skilyrði þessa er að viðkomandi hafi fengið starfsleyfi og meðmæli sveitarfélags og reki leikskólann samkvæmt lögum þessum.

5. gr.

    Bygging og rekstur leikskóla skal vera í umsjón sveitarstjórna og skulu þær sjá um framkvæmd þessara laga hver í sínu sveitarfélagi. Félagsmálanefnd, skólanefnd eða sérstök leikskólanefnd fara með stjórn leikskóla.
    Sé skólanefnd eða sérstakri leikskólanefnd falin stjórn leikskóla skal starfsfólk leikskóla kjósa einn fulltrúa til setu í nefndinni og skal hann hafa málfrelsi og tillögurétt. Enn fremur kjósa samtök foreldra einn fulltrúa til setu í nefndinni með málfrelsi og tillögurétt.

6. gr.

    Menntamálaráðuneytið skal í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga setja í reglugerð almenn ákvæði um húsnæði leikskóla: heildarrými, aðstöðu til einstaklingsþjálfunar, leikrými barna, búnað, vinnuaðstöðu starfsfólks svo og útileiksvæði.
    Í reglugerðinni skulu einnig vera viðmiðunarákvæði um barnafjölda og starfslið leikskóla.
    Enn fremur skal kveða á um það í reglugerð hverjir skulu vera umsagnaraðilar um hönnun og byggingu leikskóla.

IV. KAFLI

Yfirstjórn.

7. gr.

    Menntamálaráðuneytið fer með mál þau er lög þessi taka til. Það veitir leyfi til leikskólarekstrar. Það hefur með höndum eftirlit með því að fullnægt sé ákvæðum sem lög þessi og reglugerð mæla fyrir um. Það mótar uppeldisstefnu leikskóla, sér um útgáfu uppeldisáætlunar, sbr. 13. gr., sinnir þróunar- og rannsóknarstarfi og er stjórnendum leikskóla til ráðuneytis um starfsemina.

8. gr.

    Landinu skal skipt í leikskólaumdæmi. Leikskólaumdæmi skulu vera þau sömu og fræðsluumdæmi samkvæmt grunnskólalögum. Tengja skal starfsemi fræðsluskrifstofa grunnskóla og störf umdæmisfóstra leikskóla, þar með talin starfsemi kennslugagnamiðstöðva fyrir bæði skólastigin.
    Leikskólinn skal stuðla að því í samráði við grunnskóla að eðlileg tengsl skapist á milli þessara skólastiga. Menntamálaráðuneytið setur með reglugerð nánari ákvæði um samstarf leikskóla og grunnskóla.

9. gr.

    Í hverju leikskólaumdæmi skal starfa umdæmisfóstra. Umdæmisfóstra leikskóla skal í samvinnu við rekstraraðila og hlutaðeigandi nefndir sinna ráðgjöf og faglegu eftirliti með uppeldi og menntun í þeim leikskólum umdæmisins þar sem ekki eru aðrir leikskólafulltrúar eða umsjónarfóstrur á vegum sveitarfélaga. Umdæmisfóstra stuðlar að samstarfi leikskóla umdæmisins og samvinnu leikskóla og grunnskóla.
    Umdæmisfóstra er starfsmaður ríkisins. Við ráðningu í starf umdæmisfóstru skal taka tillit til starfsreynslu í leikskóla og framhaldsmenntunar. Nánar skal kveðið á um störf umdæmisfóstra í erindisbréfi. Ráðning umdæmisfóstra er ákveðin í fjárlögum hverju sinni.

V. KAFLI

Starfsfólk og foreldrar.

10. gr.

    Við hvern leikskóla skal vera leikskólastjóri. Leikskólastjóri og starfslið er annast fóstrustörf skal hafa fóstrumenntun, svo og þeir sem annast faglega umsjón og eftirlit með leikskólum á vegum rekstraraðila.
    Leikskólastjóri stjórnar starfi leikskólans í umboði rekstraraðila eftir því sem nánar segir í lögum þessum og reglugerðum er settar verða samkvæmt þeim. Í samráði við rekstraraðila ber leikskólastjóri ásamt starfsfólki ábyrgð á að móta heildarstefnu í uppeldis- og menntamálum leikskólans og að áætlanir þar um séu gerðar í samræmi við 13. gr.
    Ársskýrsla um starfsemi leikskólans skal send sveitarstjórn og umdæmisfóstru viðkomandi umdæmis. Sveitarstjórn skal setja starfsfólki erindisbréf í samræmi við lög þessi og reglugerð er sett verði samkvæmt þeim.

11. gr.

    Leikskólastjóri skal halda reglulega fundi með starfsfólki um stjórn heimilisins og velferð hvers einstaks barns.

12. gr.

    Skylt er rekstraraðila leikskóla að skipuleggja tengsl milli foreldra barnanna og leikskólans í því skyni að efla samstarf þessara aðila um velferð barnsins.

VI. KAFLI

Uppeldisáætlun.

13. gr.

    Menntamálaráðuneytið setur leikskólum uppeldisáætlun þar sem m.a. skal kveðið á um uppeldis- og menntunarhlutverk leikskólans og meginstefnu varðandi starfshætti.
    Í uppeldisáætlun verði gildi leiksins sem uppeldis- og kennslutækis leiðandi hugtak.
    Menntamálaráðuneytið hefur uppeldisáætlun leikskóla stöðugt til endurskoðunar og gerir tillögur um breytingar þegar þörf er talin á.

VII. KAFLI


Réttur leikskólabarna til sérstakrar aðstoðar og þjálfunar.


14. gr.

    Börn á leikskólaaldri, sem vegna fötlunar, tilfinningalegra eða félagslegra erfiðleika þurfa sérstaka aðstoð og þjálfun, eiga rétt á henni innan leikskólans, undir handleiðslu fóstra, þroskaþjálfa og annarra sérfræðinga. Þjálfunin getur verið einstaklingsbundin og í hópi innan almennrar leikskóladeildar eða á sérhæfðum deildum.
    Markmið þjálfunarinnar er m.a. að auka færni barnsins miðað við þroskastig þess. Ákvörðun um þjálfun og tilhögun hennar skal tekin í samráði við foreldra barnsins og ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu leikskólans, að undangenginni greiningu og mati sálfræðiþjónustunnar eða annarra lögboðinna greiningaraðila.
    Stefnt skal að því að barnið sæki leikskóla í sínu skólahverfi. Þó skal gefinn kostur á að leita annarra úrræða sem henta barninu betur með tilliti til þjónustu. Fatlað barn, sem sækir skóla utan síns skólahverfis, á rétt á flutningsþjónustu sem greiðist af ríkinu, sbr. lög nr. 41/1983, um málefni fatlaðra.

15. gr.

    Leikskólar skulu þannig byggðir og reknir að þeir geti sinnt fötluðum börnum á leikskólaaldri.
    Heimilt er þó að veita undanþágu frá þessu ákvæði.
    Í reglugerð skal kveðið nánar á um starfsemi, húsnæði og starfsmannahald almennra leikskóladeilda vegna veru fatlaðra barna, svo og sérhæfðra deilda.

VIII. KAFLI

Leikskólarannsóknir og þróunarstarf.

16. gr.

    Menntamálaráðuneytið stuðlar að þróunar-, tilrauna- og rannsóknarstarfi innan leikskólanna. Í því skyni skal árlega varið fé í þróunarsjóð samkvæmt ákvörðun Alþingis með fjárlögum. Menntamálaráðuneytið afgreiðir umsóknir og ákveður skiptingu fjárins.

17. gr.

    Til þess að sinna tímabundnum rannsóknar- og þróunarverkefnum á vegum menntamálaráðuneytisins má ráða sérstaka starfsmenn.

18. gr.

    Í rannsókna-, þróunar- og tilraunaskyni er ráðuneytinu heimilt að veita undanþágu frá ákvæðum laga og reglugerða.

IX. KAFLI

Ráðgjafarþjónusta.

19. gr.

    Allir leikskólar eiga rétt á sérhæfðri ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu og skal hún að jafnaði skipulögð í tengslum við ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu fræðsluumdæmisins, sbr. lög um grunnskóla.
    Menntamálaráðuneytið gerir í samráði við umdæmisfóstrur heildaráætlun um framkvæmd þessarar þjónustu.

20. gr.

    Hlutverk ráðgjafar- og sálfræðiþjónustunnar er:
—     að annast sérfræðilega ráðgjöf og fræðslu starfsfólks leikskóla og foreldra leikskólabarna um uppeldi og umönnun barnanna,
—     að annast frumgreiningu og/eða vísa í sérhæfðari greiningaraðila ef þess gerist þörf að mati ráðgjafarþjónustunnar; ennfremur að hafa umsjón og eftirlit með aðstoð og þjálfun barnanna,
—     að annast ýmis rannsóknarstörf og athuganir í sambandi við ráðgjafarþjónustuna.

21. gr.


    Menntamálaráðuneytið setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd og starfssvið ráðgjafar- og sálfræðiþjónustunnar.

X. KAFLI

Heilsuvernd og hollustuhættir.

22. gr.

    Um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit á leikskólum fer eftir lögum nr.
81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, og lögum nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu.

23. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og jafnframt falla úr gildi lög nr. 112/1976 að öðru leyti en því er lýtur að skóladagheimilum.

Ákvæði til bráðabirgða.


I.


     Uppeldisáætlun fyrir dagvistarheimili - markmið og leiðir, gefin út af menntamálaráðuneytinu 1985, tekur með lögum þessum gildi sem fyrsta uppeldisáætlun leikskóla.

II.


    Stefnt skal að því að sveitarfélög nái markmiðum 3. gr. innan 10 ára með áætlun sem unnin er í samvinnu við sveitarfélögin.

III.


    Heimilt er menntamálaráðuneytinu að fela fræðsluskrifstofum að annast þau svæðisbundnu stjórnunarverkefni sem gert er ráð fyrir í IV. kafla laganna þar til skipulag það, sem þar er gert ráð fyrir, er að fullu komið til framkvæmda.



Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, skipaði 25. janúar 1989 nefnd til að endurskoða lög nr. 112/1976 um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn í þeim tilgangi að skapa ramma um nýtt skólastig, „forskólastig“, fyrir börn undir skólaskyldualdri. Nefndinni var einnig falið að gera áætlun um uppbyggingu og rekstur dagheimila og leikskóla næstu 10 ár og um æskilegt fyrirkomulag á stofn- og rekstrarkostnaði.
    Í nefndina voru skipaðir: Ásmundur Stefánsson hagfræðingur, Bergur Felixson framkvæmdastjóri, Gerður Óskarsdóttir, ráðunautur menntamálaráðherra, Guðrún Alda Harðardóttir fóstra, Gunnhildur Gísladóttir efnafræðingur, Hallgrímur Guðmundsson bæjarstjóri, Sigríður L. Baldursdóttir eðlisfræðingur, Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfulltrúi, Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur Selma Dóra Þorsteinsdóttir, formaður Fóstrufélags Íslands, Svandís Skúladóttir deildarstjóri og Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Sóknar. Ólafur Guðmundsson deildarstjóri var starfsmaður nefndarinnar.
    Nefndin samdi tvö frumvörp, þ.e. frumvarp til laga um leikskóla og frumvarp til laga um ríkisframlag til sveitarfélaga vegna leikskóla.
    Allir nefndarmenn tóku þátt í gerð frumvarpanna en Ásmundur Stefánsson tók þó ekki þátt í samningu frumvarps til laga um leikskóla vegna anna við kjarasamninga fyrr á árinu. Bergur Felixson skilaði séráliti.
    Nokkrar breytingar voru gerðar á frumvarpinu um leikskóla í meðförum málsins í ríkisstjórn. Frumvarp um leikskóla eins og nefndin skilaði því fylgir með merkt fylgiskjal III.
    Frumvarpið, sem nefndin samdi um ríkisframlag til sveitarfélaga vegna leikskóla, fylgir hér með merkt fylgiskjal I.

Skýringar við frumvarp til laga um leikskóla.


1. Uppeldisstefna.
    Frumvarpið byggir á uppeldisstefnu sem menntamálaráðuneytið markaði 1985 varðandi börn undir skólaskyldualdri þegar ráðuneytið gaf út Uppeldisáætlun fyrir dagvistarheimili - markmið og leiðir. Áætlunin byggir á viðurkenndu markvissu uppeldisstarfi þar sem leikur og sköpun í máli, myndum, tónum og hreyfingu skipar öndvegi og þar sem mið er tekið af þroska og þörfum hvers barns og aðstæðum á heimili þess.

2. Leikskólaheitið.
    Nefndin, sem samdi leikskólafrumvarpið, leitaði til Valborgar Sigurðardóttur, fyrrverandi skólastjóra Fósturskóla Íslands, sem sérfræðings um uppeldi og þroska barna á forskólaaldri. Í greinargerð Valborgar til nefndarinnar segir hún meðal annars um gildi leiksins og leikskólaheitið:
    „ Gildi leiksins fyrir þroska barnsins á þessum ungu árum er löngu viðurkennt og staðfest á fræðilegum grundvelli. Leikurinn er lífstjáning barnsins — hið eðlilega tjáningarform þess. Leikurinn er ekki aðeins gleðigjafi, hann er þeim nám og starf. Við þurfum að líta á leiki barna sem mikilvægar náms- og þroskaleiðir og nýta þá sem slíka.
    Oft er þó sagt að börn á dagheimilum og leikskólum læri ekki neitt, „þau bara leiki sér“. En í bernsku er það að leika sér sama og að læra og leita sér þekkingar og reynslu.
    Uppeldisstofnanir/skólar þessir skulu bera nafnið leikskólar í samræmi við meginkjarna þess uppeldisstarfs sem þar fer fram.
    Leikskólaheitið skírskotar þannig til þess uppeldisstarfs og inntaks þess. Skiptir hér ekki máli hversu margar stundir á dag börnin dvelja þar. Höfuðatriðið er að þar fari fram leikskólastarfsemi í þess orðs bestu merkingu: markvisst uppeldisstarf byggt á leik og hvers konar sköpun eins og fyrr segir.
    Leikskólaheitið lýsir uppeldisstarfinu og minnir á að það sé skóli þar sem lítil börn læra og þroskast gegnum leik. Minna má á hér að latnesk/gríska orðið „schola“ þýðir í eiginlegri eða upprunalegri merkingu „tómstundir sem notaðar eru til náms“. Í orðinu leikskóli felst því heilbrigður metnaður og holl áminning.“
    Nefndin var sammála um að þetta skólastig skuli kallast leikskólastig og dagvistarheimili verði nefnd leikskólar, burtséð frá lengd dvalartíma barnanna þar.

3. Uppeldisáætlun er starfsrammi.
    Rétt þykir að gera hér grein fyrir þeirri uppeldisáætlun sem vísað er til í lagafrumvarpi þessu. Í bréfi, sem Ragnhildur Helgadóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, sendi öllum dagvistarheimilum á landinu í maí 1985, er gerð grein fyrir uppeldisáætlun sem þá var nýkomin út. Í bréfi Ragnhildar segir meðal annars:
    „Í uppeldisáætlun þessari eru sett fram markmið sem nefndin telur að stefna beri að í uppeldisstarfi á dagvistarheimilum og síðan er fjallað um helstu uppeldissvið, grundvallarviðhorf og meginleiðir í uppeldi ungra barna.
    Uppeldisáætlunin felur ekki í sér neinar grundvallarbreytingar á því starfi sem nú fer fram á dagvistarheimilum í landinu. Miklu fremur er uppeldisáætluninni ætlað það hlutverk að hlúa að því besta í því starfi sem fyrir er, auðga það og styrkja.
    Uppeldisáætlunin byggir á „hefðbundnum“ vestrænum grundvallarhugmyndum um uppeldi ungra barna, en styðst jafnframt við nýja þekkingu og reynslu á sviði uppeldisfræði og þróunarsálarfræði. Markmið uppeldisstarfsins mótast fyrst og fremst af lýðræðislegu lífsviðhorfi og kristilegu siðgæði. Aðaláhersla er lögð á að örva alhliða þroska barnanna, þ.e. líkams-, tilfinninga-, vitsmuna-, félags-, fagur- og siðgæðisþroska, efla jákvæða sjálfsmynd þeirra og búa þeim vel skipulagt uppeldisumhverfi og örugg leikskilyrði sem jafnframt eru hlýleg og lærdómsrík.
    Menntamálaráðuneytið væntir þess að uppeldisáætlun þessi geti orðið forstöðumönnum og fóstrum haldgóður leiðarvísir í uppeldisstarfi í samvinnu við starfsfólk og foreldra. Skoða ber uppeldisáætlunina sem nokkurs konar umgjörð um uppeldisstarfið og sveigjanlegan starfsramma.
    Á grundvelli þessa leiðarvísis og með markmiðin í huga geta forstöðumenn og fóstrur sérhvers dagvistarheimilis gert sínar eigin áætlanir og mótað upeldisstarfið í samræmi við þroska og þarfir barnanna og þær aðstæður sem fyrir hendi eru.“

Athugasemdir við einstaka kafla og einstakar greinar frumvarpsins.


Um I. kafla.


Um 1. gr.


    Leikskólar eru skv. 1. gr. uppeldisstaðir fyrir yngstu börnin. Þeir eiga að þjóna börnum frá því að fæðingarorlofi foreldra lýkur, það er nú sex mánuðir, þar til þau verða 6 ára og grunnskólaganga hefst.
    Þær stofnanir eða heimili, sem ekki starfa samkvæmt lögum þessum, geta ekki borið heitið leikskóli.

Um II. kafla.


Um 2. gr.


    Í greininni er lögð áhersla á samráð og samstarf foreldra og leikskóla um uppeldi og menntun barna. Hér er lögð til grundvallar sú meginforsenda fyrir tilvist leikskóla að þeir tryggi börnum umönnun og örugg uppeldisskilyrði og séu fjölskyldum til stuðnings og sjálfsögð viðbót við uppeldi og menntun sem veitt er á einkaheimilum barnanna.
    Menntunarhugtakið er túlkað vítt og gengið út frá þeim skilningi að það nái m.a. til uppeldis, umönnunar, þjálfunar og kennslu sem fyrst og fremst fer fram í leik og starfi svo sem hæfir best börnum á leikskólaaldri.
    Meginmarkmið leikskólans eru byggð á Uppeldisáætlun fyrir dagvistarheimili - markmið og leiðir sem gefin var út af menntamálaráðuneytinu árið 1985. Leikskólar eiga að stuðla að og örva alhliða þroska barna. Ákveðin og nægjanlega skýr markmið, svo og fullnægjandi aðbúnaður á leikskólum, ættu að tryggja að uppeldisstarfið sé fjölbreytt og traust.

Um III. kafla.


Um 3. gr.


    Með ákvæðum þessarar greinar er stofnun og rekstur leikskóla á ábyrgð sveitarfélaga en menntamálaráðuneytið fer með faglega yfirstjórn málaflokksins.
    Með gerð tveggja ára áætlunar á grundvelli árlegrar könnunar er sveitarfélögum ætlað að ná því markmiði að eftirspurn eftir leikskóladvöl verði fullnægt.
    Eins og í núgildandi lögum um dagvistarheimili þarf samþykki menntamálaráðuneytisins til þess að setja á stofn leikskóla (dagvistarheimili). Samþykki er gefið í formi starfsleyfis. Starfsleyfið á að tryggja að börn njóti viðhlítandi aðbúnaðar í öllum leikskólum.
    Ráðuneytinu er samkvæmt frumvarpinu heimilað að veita starfsleyfi þótt leikskólinn geti ekki boðið börnum daglega skóladvöl allt árið. Reikna má með að leikskólar í dreifbýli þyrftu helst á þessari heimild að halda.
    Í upphaflegum drögum að frumvarpi hljóðaði þessi grein svo: „Sveitarfélögum er skylt samkvæmt lögum þessum að reka eða eiga aðild að rekstri leikskóla fyrir börn á leikskólaaldri. Óski foreldrar eða aðrir forráðamenn eftir leikskóladvöl fyrir barn sitt skal hún veitt í 4–9 stundir daglega eftir því sem best hentar barni og fjölskylduaðstæðum þess.“
    Við meðferð málsins í ríkisstjórn var sú breyting gerð sem nú kemur fram í 3. gr. frumvarpsins.
    Menntamálaráðuneytið er aftur á móti sammála orðalagi 3. gr. eins og hún kom frá leikskólanefndinni því að hún tryggir börnum lögvarinn rétt til umönnunar og öruggari uppeldisskilyrða en kostur er ella. Núverandi dagvistarkerfi getur aðeins þjónað 46% barna á aldrinum 1/2 til 6 ára, annaðhvort á leikskóla eða dagheimili. Í upphaflega frumvarpinu var gert ráð fyrir því að sveitarfélög fengju 10 ára aðlögunartíma til þess að fjölga leikskólum og starfsfólki með viðhlítandi menntun og uppfylltu þar með skyldur til þess að fullnægja eftirspurn. Greinin átti að taka gildi að fullu eftir 10 ára aðlögunartímabil.
    Núverandi skipting dagvistarstofnana í leikskóla og dagheimili er afnumin í frumvarpinu eins og það liggur nú fyrir, en sú skipting hefur byggst á mismunandi lengd daglegrar dvalar barnanna. Samheitið fyrir þessar mennta- og uppeldisstofnanir verður leikskóli sem gefur til kynna menntunarleið yngstu barnanna, þ.e. leikinn. Aðgreining í leikskóla og dagheimili er villandi og gefur í skyn að markmið þessara stofnana séu ólík. Með því að afnema skiptinguna er lögð áhersla á að hlutverk leikskóla (dagvistarstofnana) er það sama hvort sem barn dvelur þar 4 eða 9 stundir daglega, þ.e. að búa börnum örugg leikskilyrði undir leiðsögn sérmenntaðs starfsfólks.
    Lengd daglegrar dvalar barns á að fara eftir aðstæðum hjá fjölskyldu þess og skulu hagsmunir barnsins lagðir til grundvallar. Vinni foreldrar t.d. utan heimilis allan daginn á að tryggja að barnið geti verið á einum og sama staðnum þann tíma, en þurfi ekki að þeytast á milli margra staða daglega.

Um 4. gr.


    Eins og í núgildandi lögum um dagvistarstofnanir er öðrum aðilum en sveitarfélögum heimilt að stofnsetja og reka leikskóla (dagvistarheimili) liggi samþykki menntamálaráðuneytisins og viðkomandi sveitarfélags fyrir.

Um 5. gr.


    Með 5. gr. er gert ráð fyrir því að sveitastjórnir ákveði hvort þær fela félagsmálanefnd, leikskólanefnd eða skólanefnd grunnskóla, sem fyrir eru, að sinna málefnum leikskólans í umboði sínu.
    Sé skólanefnd eða sérstakri leikskólanefnd falin stjórn leikskóla skal starfsfólk leikskóla kjósa einn fulltrúa til setu í nefndinni og skal hann hafa málfrelsi og tillögurétt. Enn fremur kjósa samtök foreldra einn fulltrúa til setu í nefndinni með málfrelsi og tillögurétt. Fulltrúar starfsmanna leikskóla og foreldrar leikskólabarna kjósa þó ekki fulltrúa í félagsmálanefnd.

Um 6. gr.


    Greinin kveður á um þau atriði varðandi húsnæði, búnað, fjölda barna og starfsfólks sem setja skal í reglugerð til þess að tryggja viðhlítandi aðbúnað í öllum leikskólum.
    Í greininni er getið sérstaklega um aðstöðu til einstaklingsþjálfunar er nýtast má fötluðum börnum og þeim sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Slík aðstaða þarf að vera rúmgóð og með góðu geymslurými þar sem jafnframt getur verið boðið upp á fjölbreyttari möguleika í leik og starfi leikskólabarna almennt.

Um IV. kafla.


Um 7. gr.


    Í 1. mgr. 3. gr. felst að menntamálaráðuneytið fer með faglega umsjá málaflokksins og veitir leyfi til leikskólarekstrar samkvæmt þessari grein. Enn fremur er hér lagt til að ríkið marki heildarstefnu í uppeldismálum leikskólans og hafi yfirsýn yfir innra starf leikskólanna í landinu til að tryggja sem jöfnust uppeldis- og menntunarskilyrði leikskólabarna, burtséð frá búsetu þeirra og heildaraðstæðum. Með eftirlitshlutverki menntamálaráðuneytisins ætti að safnast á einar hendur sú vitneskja um málefni leikskólans sem nauðsynleg er til að móta heildstæða uppeldisstefnu leikskólans og tryggja markvisst þróunar- og rannsóknarstarf svo að ráðuneytið sé í stakk búið að vera stjórnendum leikskólanna til ráðuneytis um starfsemina eins og segir í greininni.

Um 8. gr.


    Hér er gert ráð fyrir því að landinu verði skipt í sérstök leikskólaumdæmi samkvæmt skiptingu í fræðsluumdæmi eins og ákveðið er í grunnskólalögum hverju sinni. Enda er ráð fyrir því gert í greininni að tengja starfsemi fræðsluskrifstofa grunnskóla og störf umdæmisfóstra leikskóla eins og kostur er til að mynda sem mesta samfellu í uppeldi og menntun barna allt frá upphafi leikskólastigs til loka skólagöngu. Með þessum samtengingaráætlunum má enn fremur ætla að verulegir fjármunir sparist nái þær fram að ganga. Áhersla er lögð á tengsl og samskipti leikskóla og grunnskóla og ráð fyrir því gert að ráðuneytið setji sérstaka reglugerð um samskipti þessara skólastiga.

Um 9. gr.


    Í þessari grein er gert ráð fyrir að í hverju umdæmi sé starfandi umdæmisfóstra á vegum menntamálaráðuneytisins sem sinni umsjónar-, ráðgjafar- og eftirlitsstarfi er lýtur að uppeldi og menntun leikskólabarna.
    Grein þessi gerir því ráð fyrir að þjónusta ráðuneytisins verði færð út á landsbyggðina.
    Þessi tilhögun er ekki síst mikilvæg fyrir minni sveitarfélög sem ekki hafa í þjónustu sinni umsjónarfóstrur og/eða leikskólafulltrúa.
    Leikskólum, sem reknir eru af öðrum en sveitarfélögum, hefur fjölgað ár frá ári og er að finna víða um land. Til að ráðuneytið geti sinnt hlutverki sínu gagnvart börnum í þessum leikskólum er nauðsynlegt að flytja þjónustu ráðuneytisins út í umdæmin.
    Eðlilegt er að ráðið verði í stöður umdæmisfóstra í áföngum. Þannig verði þessu ákvæði í greininni fullnægt á nokkrum árum.

Um V. kafla.


Um 10. gr.


    Leikskólastjóri gegnir veigamiklu forustuhlutverki í uppeldisstarfi leikskólans jafnframt því sem hann hefur á hendi margþætt stjórnunarstarf.
    Greinin tekur einnig til menntunar þeirra er sinna fóstrustörfum og ráðgjafarstörfum á vegum rekstraraðila.
    Til að sveitarstjórnir og menntamálaráðuneytið hafi yfirsýn yfir starfsemi leikskólanna í landinu er lagt til að leikskólastjóri ásamt starfsfólki sínu geri ársskýrslu um starfsemi leikskólans og sendi viðkomandi sveitarstjórn og umdæmisfóstru.

Um 11. gr.


    Hér er um að ræða sömu ákvæði og í lögum nr. 112/1976, 18. gr., og þarfnast því ekki skýringar.

Um 12. gr.


    Eitt af markmiðum leikskólans, sbr. 2. gr. í frumvarpi þessu, er „að kappkosta í samvinnu við heimilin að efla aðhliða þroska barnanna í samræmi við þarfir þeirra ...“
    Grein þessi kveður nánar á um þá skyldu leikskóla að sinna þessu mikilvæga samstarfi við foreldra.

Um VI. kafla.


Um 13. gr.


    Grein þessi fjallar um gerð nokkurs konar námsskrár leikskóla sem myndi eins konar umgjörð um starfið eða sveigjanlegan starfsramma.
    Allt frá 1985 hafa leikskólar haft Uppeldisáætlun fyrir dagvistarheimili - markmið og leiðir sem leiðarvísi í sínu leikskólastarfi.
    Á grundvelli þessa leiðarvísis og með markmiðin að leiðarljósi getur sérhver leikskóli gert sínar eigin áætlanir í samræmi við þær þarfir og aðstæður sem fyrir hendi eru.

Um VII. kafla.


Um 14. gr.


    Hér er lagt til að leikskólinn verði vettvangur þjálfunar og meðferðar fatlaðra barna og þeirra barna sem þurfa einhvers konar aðstoð og þjálfun vegna tilfinningalegra eða félagslegra erfiðleika. Þetta er í anda laga um málefni fatlaðra, nr. 41/1983, en þar segir að dagvistarstofnanir séu einnig stofnanir fyrir fatlaða og að uppbyggingu þeirra og starfsemi skuli vera þannig háttað að þjónusta þeirra nýtist fötluðum til jafns við aðra þjóðfélagsþegna. Þetta er einnig í samræmi við 2. gr. þessa frumvarps en þar segir meðal annars að leikskólinn skuli kappkosta að efla alhliða þroska barnanna. Það er ljóst að til þess að fullnægja þessu markmiði, hvað þennan sérstaka hóp barna varðar, þurfa þau meiri og sérhæfðari þjónustu en önnur börn og mikilvægt er að sú þjónusta sé veitt innan leikskólans. Sem dæmi má nefna þroskaþjálfun, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talkennslu sem fram fer í samræmi við niðurstöður greiningar á eðli fötlunar og í beinu framhaldi af greiningu.
    Þjálfunin skal fara fram inni á almennum leikskóladeildum eða á sérhæfðum deildum og framkvæmd ýmist með einu barni í einu eða í misstórum hópum barna í samræmi við einstaklingsbundnar þarfir þeirra og möguleika. Jafnframt skal auðvelda fötluðum börnum þátttöku í almennu leikskólastarfi svo sem kostur er, meðal annars með því að skipuleggja almennt leikskólastarf einnig á þeirra forsendum. Þetta er þeim mun mikilvægara þar sem í leikskóla gefst tækifæri til að leggja grundvöll að eðlilegum samskiptum fatlaðra og ófatlaðra í framtíðinni.
    Sérhæfðar deildir eru hugsaðar fyrir börn sem fötlunar sinnar vegna geta tímabundið eða varanlega illa nýtt sér starf á almennri leikskóladeild. Starfsemi þessara deilda skal falla sem eðlilegast að heildarstarfi leikskólans. Aðgangur barna af sérhæfðu deildinni að öðrum deildum leikskólans þarf að vera greiður svo og aðgangur að sameiginlegri leikaðstöðu barnanna.
Lagt er til að foreldrar og ráðgjafar- og sálfræðiþjónustan taki með hliðsjón af greiningu sameiginlega ákvörðun um hvaða tegund þjálfunar barnið skuli fá og hvers konar leikskóli verði fyrir valinu, þ.e. almenn leikskóladeild eða sérhæfð deild.

Um 15. gr.


    Lagt er til að leikskólar verði þannig byggðir og skipulagðir að þeir geti sinnt fötluðum börnum á leikskólaaldri. Hér er m.a. átt við að almennt leikskólastarf taki mið af mismunandi færni barnanna og að það sé þannig skipulagt að fatlaða barnið samlagist hópnum sem best en einangrist ekki. Auk þess þarf að vera til staðar fagþekking, sbr. 14. gr. þessa frumvarps, aðstaða til einstaklingsþjálfunar og aðgengi fyrir fatlaða um lóð og útileiksvæði.
    Menntamálaráðuneytinu er þó heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði ef sveitarfélag hefur þegar á að skipa leikskólum sem fullnægja þessu ákvæði og þörfinni er fullnægt.

Um VIII. kafla.


Um 16. gr.


    Í greininni er gert ráð fyrir stofnun sérstaks þróunarsjóðs til að standa straum af þeim kostnaði sem óhjákvæmilega hlýst af þróunar-, tilrauna- og rannsóknarstarfi innan leikskólanna, sbr. þróunarsjóð grunnskóla. Fé er veitt í sjóðinn af fjárlögum hverju sinni, en menntamálaráðuneytið afgreiðir umsóknir og ákveður skiptingu fjárins.

Um 17. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 18. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um IX. kafla.


Um 19. gr.


    Ekki verður um það deilt að öflug ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta er nauðsynleg til að styrkja það faglega starf sem lögin gera ráð fyrir að fari fram í leikskólum. Einnig er það augljóst hagkvæmnisatriði að þessi þjónusta sé skipulögð í tengslum við þá ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu sem fyrir er innan grunnskólans. Þó er rétt að benda á sérstöðu Reykjavíkurborgar sem hefur skipulagt sérstaka þjónustu eingöngu fyrir dagvistarstofnanir. Vegna umfangs þeirrar þjónustu má ætla að það fyrirkomulag, sem þróast hefur, henti áfram.
    Ekki er í frumvarpinu rætt um menntunarkröfur sem gerðar skulu til þeirra sem sinna ráðgjafarstarfi innan leikskólans né heldur hvaða menntun forstöðumaður leikskóladeildar ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu hafi. Varðandi þessi atriði vísast til þess fyrirkomulags sem gildir um ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu grunnskólans en þó með sérþarfir leikskólans í huga. Einnig er í frumvarpinu gert ráð fyrir að menntamálaráðuneytið setji sérstaka reglugerð (21. gr.) um framkvæmd og starfssvið ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu og verða þessi atriði væntanlega skilgreind á þeim vettvangi.

Um 20. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 21. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um X. kafla.


Um 22. gr.


    Með vísan til síðari málsgreinar greinarinnar skal á það bent að manneldisráð hefur látið útbúa matseðla fyrir dagvistarstofnanir þar sem gefnar eru ábendingar um hollan morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu fyrir forskólabörn. Verða þeir tilbúnir til notkunar innan skamms. Rétt er að benda á að ekki er nauðsynlegt út frá næringarfræðilegu sjónarmiði að börnin borði heita máltíð í hádeginu, köld máltíð getur verið jafnholl. Hins vegar er æskilegt að börn borði a.m.k. eina heita máltíð á dag. Fái þau hana ekki heima er mikilvægt að hún standi þeim til boða á leikskólanum.
    Að öðru leyti þarfnast greinin ekki skýringa.

Um 23. gr.


    Gert er ráð fyrir því að lögin öðlist þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi eldri lög nr. 112/1976, um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir
börn, en sá hluti þeirra er tekur til skóladagheimila heldur áfram gildi sínu.

Um ákvæði til bráðabirgða.


I.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

II.


    Sjá athugasemdir við 3. gr.

III.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.



(Texti fylgiskjala er ekki til tölvutækur.)