Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 460 . mál.


Nd.

1090. Frumvarp til laga



um Skákskóla Íslands.

(Eftir 2. umr. í Nd., 28. apríl.)



1. gr.

    Á vegum Skáksambands Íslands og í samvinnu við menntamálaráðuneytið starfar skóli er nefnist Skákskóli Íslands.

2. gr.

    Skólinn er starfræktur í húsakynnum Skáksambands Íslands. Skal árlega veittur til hans styrkur á fjárlögum sem hér segir:
a.    Framlag sem nemi einu stöðugildi í 8. þrepi 144. lfl. BHM.
b.    Rekstrarstyrkur sem nemi hæfilegri leigu fyrir afnot húsnæðis.

3. gr.


    Hlutverk skólans er að annast skákkennslu og hafa á hendi hvers kyns fræðslu sem miðar að því að efla vöxt og viðgang skáklistarinnar á Íslandi. Skal skólinn m.a. halda námskeið úti á landi í samvinnu við skóla og taflfélög.

4. gr.

    Skólastjórn Skákskóla Íslands skal skipuð þremur mönnum sem tilnefndir eru af eftirtöldum aðilum til þriggja ára í senn: Menntamálaráðherra skipar einn, Skáksamband Íslands skipar tvo, þar af annan í samráði við Félag íslenskra stórmeistara.
    Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Nánar skal kveðið á um verksvið hennar í reglugerð.

5. gr.

    Skólastjórn ræður skólastjóra Skákskóla Íslands sem annast rekstur skólans og ræður til hans kennara með samþykki stjórnar.

6. gr.

    Skólinn skiptist í almenna deild og framhaldsdeild. Nám í almennum deildum skal auglýst og greiða nemendur námsgjald fyrir. Í framhaldsdeild eru nemendur valdir á grundvelli inntökuprófs og skólavist ókeypis. Kennslu í framhaldsdeild annast skákmeistarar sem laun þiggja samkvæmt lögum um launasjóð stórmeistara í skák.
    Í starfsemi skólans er skylt að gæta jafnréttis kynjanna í hvívetna.
    Nánar skal kveðið á um starfsemi deilda og tilhögun kennslu í reglugerð.

7. gr.

    Til að standa straum af kostnaði við stofnun skólans skal veittur sérstakur styrkur á fjárlögum ársins 1991.

8. gr.


    Menntamálaráðherra er heimilt að semja við önnur félagasamtök eða einkaaðila um rekstur skákskóla samkvæmt lögum þessum.

9. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1991.