Ferill 411. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 411 . mál.
Ed.
1133. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980.
Frá Guðrúnu Agnarsdóttur.
1. Við 1. gr. Síðari efnismgr. orðist svo:
Ungmenni merkja í lögum þessum unglinga 16 og 17 ára.
2. Við 3. gr. Í stað orðsins „ungmenni“ í niðurlagi greinarinnar komi: unglingar 16 og 17 ára.