Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 163 . mál.


Nd.

1178. Nefndarálit



um frv. til. l. um breyt. á l. nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Davíð Á. Gunnarsson, forstjóra Ríkisspítala, Skúla G. Johnsen borgarlækni og Dögg Pálsdóttur, deildarstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Nefndinni bárust umsagnir frá bæjarstjórn Hafnarfjarðar og stjórnarnefnd Ríkisspítala.
    Nefndin leggur til að 4. gr. verði breytt þannig að verkefni heilbrigðismálaráðs verði eftirlit með, en ekki stjórn heilbrigðismála í héraði. Einnig er lagt til að heilbrigðismálaráð skipuleggi ekki rekstur heilbrigðisstofnana í héraði þar sem slíkt er frekar í verkahring stjórna einstakra stofnana eftir því sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið ákveður. Þá leggur nefndin til að í 1. málsl. síðustu málsgreinar 10. gr. frumvarpsins verði tekið fram til öryggis að íbúar Seltjarnarness geti valið sér heimilislækni eða heilsugæslulækni á sama hátt og íbúar Reykjavíkurborgar.
    Nefndin fellst á þær breytingar sem gerðar voru í meðförum efri deildar að einni undanskilinni. Gerð er tillaga um breytingu á ákvæði til bráðabirgða þannig að það sé hafið yfir efa að ekki sé ætlunin að leggja Heilsuverndarstöðina í Reykjavík niður, heldur að henni sé ætlað framtíðarhlutverk í tengslum við heilsugæslustarf í Reykjavík samkvæmt þeim lögum sem hér er fjallað um og samkvæmt þeim tillögum sem stjórn hennar kemur til með að gera.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali, en nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja aðrar breytingartillögur eða fylgja þeim sem fram kunna að koma.

Alþingi, 2. maí 1990.



Jón Sæmundur Sigurjónsson,


form., frsm.


Anna Ólafsdóttir Björnsson,


fundaskr.


Geir Gunnarsson.


Sólveig Pétursdóttir.


Geir H. Haarde.


Guðmundur G. Þórarinsson.


Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.