Forseti (Árni Gunnarsson) :
Forseti vill láta þess getið að það er ekki á hverjum degi að ályktunartillögur eru bornar fram í deildum, en fyrir því er heimild í þingskapalögum þar sem segir í 28. gr. að ályktunartillögur sem bornar eru upp í þingdeild lúti í öllu sömu reglum um málsmeðferð sem þáltill. Þessa er getið vegna þess að um þessar tillögur fara fram tvær umræður, hin fyrri og hin síðari.