Frsm. fjh. - og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Hér er um að ræða staðfestingu á samningi um norrænt fjármögnunarfélag. Þessi samningur er milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns fjármögnunarfélags á sviði umhverfismála og var hann undirritaður í Reykjavík 2. mars 1990.
    Fjh. - og viðskn. deildarinnar hefur athugað þetta frv. Álit hennar liggur fyrir á þskj. 208 og mælir nefndin með samþykkt þess eins og það var afgreitt frá Ed.
    Jón Sæmundur Sigurjónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en aðrir nefndarmenn undirrita nál.