Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason) :
Virðulegi forseti. Á þskj. 123 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. um kostnað við margumtalaðar breytingar á Þjóðleikhúsi Íslendinga. Fsp. er svohljóðandi:
,,1. Hve hárri fjárhæð nam kostnaður við breytingar á Þjóðleikhúsi Íslendinga 31. okt. 1990:
a. hönnunar - og stjórnunarkostnaður,
b. kostnaður við verklegar framkvæmdir?
2. Hvernig samræmast þessar kostnaðartölur áætlunum um framkvæmd verksins?
3. Hvaða áætlanir eru uppi um framhald verksins?
4. Er fjármagn tryggt til verkloka?``