Jarðalög
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Nú er það svo að ágreiningur er um það í hvaða nefnd þetta dagskrármál á að fara. Hv. fyrri flm. frv. hefur óskað eftir því að málið fari til allshn. og gerði hann grein fyrir ástæðum þessarar óskar sinnar við umræður í gær og raunar við upphafsumræður um frv. Þetta hefur mætt mikilli mótspyrnu í ræðum nokkurra hv. þingdeildarmanna sem talað hafa í málinu sem hafa óskað eftir því að málið fari til hv. landbn. Það er því augljóst að það verður að leita til hv. deildar og fá hana til að skera úr um það til hvorrar nefndar mál þetta skuli fara. Forseti vill þá bera upp tillögu hv. 1. flm. frv.