Halldór Blöndal (um atkvæðagreiðslu) :
Ég þakka hæstv. forseta fyrir þennan mikla dugnað að láta samþykkja 4. gr. tvisvar sinnum óbreytta. Þá erum við, og það er raunar mér að kenna, búin að samþykkja framlagið til Verkmenntaskólans á Akureyri þrisvar sinnum. Vona ég að það gæti orðið til þess að eitthvað rættist úr fyrir þeirri stofnun.