Húsnæðisstofnun ríkisins
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ég hef talað tvisvar um málið sjálft og fæ heimild til að gera stutta athugasemd á eftir. Ég óska eftir að hæstv. félmrh. taki til máls. Ég vil sérstaklega beina því til hæstv. félmrh. að svara fyrirspurn minni sem frsm. nefndarinnar vék ekki einu einasta orði að, hvar þær heimildir eru í félagslega kerfinu sem eru í 22. gr. núgildandi laga um Húsnæðisstofnun ríkisins.