Kortlagning gróðurlendis Íslands
Fimmtudaginn 17. janúar 1991


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Vegna efasemda hæstv. umhvrh., sem að vísu er nú ekki staddur hér í salnum, um það að e.t.v. ætti frekar að vísa þessu máli til allshn. heldur en atvmn. eins og tillaga 1. flm. hljóðaði upp á, þá vill forseti til að taka af allan vafa leyfa sér að lesa hér það sem fram kemur í 15. gr. þingskapa varðandi vísan mála til nefnda, en þar segir: ,,Til atvinnumálanefndar skal vísa þeim málum sem landbúnaðar - , sjávarútvegs - og iðnaðarnefndir í deildum mundu fjalla um ef borin væru fram í frumvarpsformi.`` Þess vegna telur forseti að hér hafi verið rétt að staðið og hæstv. umhvrh. hefur þá væntanlega fengið svar við þessum efasemdum sínum.