Lánskjör og ávöxtun sparifjár
Þriðjudaginn 29. janúar 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Forseti hefur ekki við að leiðrétta ummæli hv. þm. Hv. 6. þm. Norðurl. e. sagði að þessi umræða færi fram að hæstv. ráðherrum fjarverandi. Um það var samið við hv. 1. flm. að hann talaði fyrir málinu enda þótt hæstv. viðskrh. og hæstv. forsrh. væru ekki hér. En forseti tekur auðvitað undir það að það er ákaflega eðlilegt og sjálfsögð krafa sem hv. þingdeildarmenn eiga á hæstv. ráðherra að þeir séu hér viðstaddir umræður af þessu tagi.