Langtímaáætlun í vegagerð
Fimmtudaginn 28. febrúar 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða vill forseti benda á að venja er þegar um slík nefndarstörf er að ræða hvort sem eru milliþinganefndir eða aðrar nefndir, að sé verulegur ágreiningur í nefndinni skilar minni hl. séráliti sem oft er látið fylgja með. Forseti áttar sig ekki alveg á hvort svo var að þessu sinni en mun að sjálfsögðu ræða við ráðherra og aðra aðila um frágang á þingskjalinu.