Leikskóli
Föstudaginn 15. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Forseti skal koma því áleiðis til hv. formanns menntmn. að hv. 6. þm. Norðurl. e. hefur gert það að tillögu sinni að gildistökuákvæðum 23. gr. leikskólafrumvarps verði breytt og yrði þá hugsanlegt að koma því áleiðis eftir að málið hefur komið til Ed. og þeir gætu þá haft um það samvinnu, formaður menntmn. Nd. og formaður menntmn. Ed.