Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 15. mars 1991


     Hreggviður Jónsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég var búinn að óska eftir svörum frá hæstv. félmrh. um nokkur atriði, m.a. greiðslubyrði af lánum, skattamál Búseta o.fl. og ég vonaðist eftir því að hæstv. félmrh. svaraði einhverju af þessu í þessari umræðu. Annars gæti maður hæglega rætt um þessi mál allítarlega ef menn óska sérstaklega eftir því.