Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 20 . mál.


Sþ.

20. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um ferðakostnað ráðherra.

Frá Inga Birni Albertssyni.



    Hver var ferðakostnaður hvers ráðherra vegna ferðalaga til útlanda árið 1989 og fram til 1. okt. 1990?
     Óskað er eftir svofelldri sundurliðun:
         
    
hve margar ferðir hver ráðherra fór, hvert var farið og hve lengi hann dvaldist samtals erlendis;
         
    
fargjöld;
         
    
samanlagður hótelkostnaður (gisti - og fæðiskostnaður);
         
    
risna;
         
    
dagpeningagreiðslur, þar með talið álag á þær;
         
    
heildargreiðslur vegna maka (ferðakostnaður, dagpeningar o.fl.).



Skriflegt svar óskast.
.............