Ferill 127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 127 . mál.
Sþ.
131. Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um upplýsingar um tengsl öryggislögreglu Þýska alþýðulýðveldisins, Stasi, við íslenska aðila.
Geir H. Haarde.
Hyggst utanríkisráðherra fara þess á leit við þýsk stjórnvöld að þau veiti upplýsingar úr eða heimili aðgang að skjalasafni Stasi, öryggislögreglu Þýska alþýðulýðveldisins, sem vitað er að hafði víðtæk alþjóðleg umsvif, til þess að leiða í ljós hvort hún hafi verið í tengslum við íslenska aðila?