Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 188 . mál.


Sþ.

220. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um útreikningsreglur viðskiptabanka á vöxtum verðtryggðra innlána og útlána.

Frá Guðmundi G. Þórarinssyni.



     Hvernig eru vextir reiknaðir hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum:
         
    
     af verðtryggðum útlánum,
         
    
     af verðtryggðum innlánsreikningum?
     Telur ráðherra ekki nauðsynlegt að viðskiptabankar og sparisjóðir geri almenningi grein fyrir þeim grundvallarmun sem á þessum reiknireglum er?