Ferill 9. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 9 . mál.


Sþ.

326. Breytingartillaga



við till. til þál. um átak gegn einelti.

Frá félagsmálanefnd.



    Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því að gert verði átak gegn einelti meðal barna og unglinga og skipa í þessu skyni samstarfshóp kunnáttufólks til að gera tillögur um úrbætur.