Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 293 . mál.
Sþ.
528. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um aðgang ungmenna að skemmtistöðum.
Frá Valgerði Sverrisdóttur.
Gildir önnur regla um aðgang ungmenna að stöðum sem leyfi hafa til áfengisveitinga en sú sem almennt er boðuð í 43. gr. barnaverndarlaga, sbr. breytingu á þeim með lögum nr. 14/1983, þ.e. að miða skuli við fæðingarár en ekki fæðingardag?