Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. –
323
. mál.
Sþ.
570. Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um sölu á landbúnaðarafurðum til varnarliðsins í Keflavík.
Frá Guðna Ágústssyni.
Hversu mikið af landbúnaðarafurðum seldu Íslendingar varnarliðinu í Keflavík, sundurgreint eftir tegundum, á árunum 1988, 1989 og 1990?
Hversu mikið af kjötvörum fékk varnarliðið að flytja til Íslands á árunum 1988, 1989 og 1990, sundurgreint eftir tegundum? Hversu mikið var flutt inn af öðrum landbúnaðarafurðum, sundurgreint eftir tegundum, á sama árabili?
Skriflegt svar óskast.