Ferill 342. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 342 . mál.


Sþ.

605. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um atvinnumál á Suðurnesjum með minnkandi umsvifum Bandaríkjahers.

Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.



     Hvaða áætlanir hefur ríkisstjórnin gert í atvinnumálum á Suðurnesjum til að mæta þeim samdrætti í umsvifum Bandaríkjahers sem fyrirsjáanlegur er?
     Hafa stjórnvöld látið gera áætlanir um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum sem yrðu notaðar við brottför Bandaríkjahers frá herstöðvum þar?