Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 321 . mál.


Nd.

852. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á lagaákvæðum er varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Frumvarpið er flutt í tengslum við frumvarp um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, 320. mál, og var rætt samhliða því í nefndinni. Um umsagnir, sem nefndinni bárust í málinu, vísast til nefndarálits um 320. mál.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma.

Alþingi, 6. mars 1991.



Páll Pétursson,


form., frsm.

Guðmundur G. Þórarinsson,


fundaskr.

Ragnar Arnalds.


Jón Sæmundur Sigurjónsson.