Ferill 230. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 230 . mál.


Nd.

863. Frumvarp til laga



um samvinnufélög.

(Eftir 2. umr. í Nd., 11. mars.)



    Samhljóða þskj. 331 með þessum breytingum:

    44. gr. hljóðar svo:
     Óheimilt er að ákveða hömlur á viðskiptum með hluti í B - deild stofnsjóðs eða með samvinnuhlutabréf.
     Um framsal og veðsetningu samvinnuhlutabréfa gilda venjulegar reglur um viðskiptabréf nema annað sé tekið skýrt fram í bréfinu.
     Samvinnufélag má aldrei eiga lengur en þrjá mánuði meira en 10% af hlutum eigin B-deildar stofnsjóðs. Eignist félagið meira af slíkum hlutum, svo sem með kaupum eða fyrir annað framsal, skal það hafa selt hlutina þannig að lögmæltu marki sé náð innan þriggja mánaða.
     Nú eignast dótturfélag samvinnufélags hluti í móðurfélaginu, eða tekur þá að veði, og eiga þá ákvæði 3. mgr. við.
     Samvinnufélagi er óheimilt að taka eigin samvinnuhlutabréf að veði til tryggingar lánum til eigenda slíkra bréfa.
     Engin félagsréttindi fylgja eign félagsins í B - deild stofnsjóðs.

    Ákvæði til bráðabirgða hljóða svo:
     Samvinnufélög og samvinnusambönd, sem starfandi eru við gildistöku laga þessara, skulu hafa breytt samþykktum sínum í samræmi við ákvæði laganna í síðasta lagi 1. janúar 1993 og skulu þau um leið fullnægja tilkynningarskyldu til samvinnufélagaskrár.
     Viðskiptaráðherra skal eftir setningu laga þessara skipa nefnd sem hafi það hlutverk að gera tillögur um framtíðarskipan innlánsdeilda samvinnufélaga. Skal nefndin skila áliti í síðasta lagi 1. júlí 1992. Jafnframt skal nefndin gera tillögur um þær lagabreytingar sem nauðsynlegar kunna að verða til þess að fella reglur um rekstur innlánsdeilda að almennum reglum sem gilda um aðrar innlánsstofnanir og jafnframt taka tillit til sérstöðu starfandi innlánsdeilda og þýðingar þeirra fyrir hlutaðeigandi samvinnufélög.