Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 321 . mál.


Nd.

885. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á lagaákvæðum er varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri o.fl.

Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Hér er um að ræða nauðsynlegt fylgifrumvarp með frumvarpi til laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, sem er 320. mál neðri deildar á þskj. 565, og vísast hér með til nefndarálits 1. minni hl. á þskj. 883.
    Fyrsti minni hl. telur rétt að takmarka vald ráðherra til að veita undanþágur og leggur til breytingar á 9. gr. og 15. gr. frumvarpsins í samræmi við það.
    Þá telur 1. minni hl. að ekki eigi að opna fyrir heimild til erlendra aðila til reksturs útvarpsstöðva hérlendis og leggur því til að 20. gr. frumvarpsins falli brott.

Alþingi, 12. mars 1991.



Guðný Guðbjörnsdóttir.