Ferill 465. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 465 . mál.


Ed.

945. Frumvarp til laga



um dýravernd.

(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990 91.)



I. KAFLI


Gildissvið laganna.


1. gr.


     Lög þessi taka til allra dýra, en þó einkum til þeirra sem eru í vörslu eða umsjón manna.
     Um meðferð og aðbúnað einstakra búfjártegunda skal að auki fara að fyrirmælum laga og reglugerða þar að lútandi.

II. KAFLI


Meðferð dýra, vistarverur, umhirða og mörkun.


2. gr.


     Skylt er að fara vel með dýr og forða þeim frá vanlíðan.

3. gr.


     Eigendum eða umráðamönnum dýra ber að sjá þeim fyrir fullnægjandi vistarverum, nægilegu fóðri, vatni og umhirðu með tilliti til tegundar þeirra, aldurs, aðlögunarhæfni og tamningar. Vistarverur dýra skulu vera hreinar og hæfilega rúmgóðar.
     Tryggt skal að dýr hafi hæfilegt frelsi til hreyfinga með hliðsjón af tegund þeirra og samkvæmt viðurkenndri reynslu og þekkingu. Frelsi þeirra til hreyfinga má ekki skerða á þann hátt að það valdi þeim þjáningu eða meiðslum.
    Þar sem dýr eru tjóðruð eða haldið inni að staðaldri eða reglulega skal þeim séð fyrir nægilegu rými sem hæfir eðlilegum þörfum þeirra.
     Haga skal lýsingu, upphitun, loftræstingu, rakastigi og öðrum atriðum í vistarverum dýra í samræmi við þarfir þeirra dýra sem þar eru. Forðast ber óþarfa hávaða.
     Haga skal fóðrun dýra þannig að ekki sé hætta á að þau þjáist eða bíði heilsutjón af.

4. gr.


     Eigendur eða umráðamenn dýra skulu fylgjast með heilsu þeirra og ástandi svo að komast megi hjá ónauðsynlegri vanlíðan þeirra. Sérstakt eftirlit skal haft með dýrum sem haldin eru á stórvirkum tæknibúum.
     Dýralæknir eða dýraverndarráðunautur skoðar og samþykkir vistarverur sem ætlaðar eru dýrum.

5. gr.


     Að vetri til þegar búfé er haldið til beitar eða látið liggja við opið er skylt að hafa góðar vistarverur og nægilegt fóður og vatn á staðnum og sinna því daglega.

6. gr.


     Umhverfisráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um vistarverur dýra. Þar skal enn fremur setja fyrirmæli um lokun dýra í búrum, þröngum stíum og tjóðrun þeirra til langframa.

7. gr.


     Óheimilt er að meiða dýr eða hrekkja. Þeim skal sýna vægð og nærgætni í brúkun og forðast að ofbjóða kröftum þeirra. Óheimilt er að nota útbúnað eða tæki til að aga eða reka dýr sem getur sært þau eða skaðað á annan hátt.

8. gr.


     Mörkun dýra skal gerð á þeim sem yngstum og á þann hátt að valdi sem minnstum sársauka.

9. gr.


     Verði maður var við dýr, sem er sjúkt, lemstrað eða bjargarvana að öðru leyti, er honum skylt að veita því umönnun eftir föngum og gera eiganda eða umráðamanni, löggæslumanni eða dýralækni viðvart án tafar. Nú næst ekki til þessara aðila og sjúkdómur dýrs eða lemstur eru tvímælalaust banvæn og er þá viðkomandi heimilt, eða jafnvel skylt, að deyða dýrið ef það er mjög kvalið. Þeim sem deyðir dýr með þessum hætti er skylt að skýra löggæslumanni frá því svo fljótt sem kostur er.

10. gr.


     Ökumenn skulu sýna dýrum á vegum fyllstu tillitssemi hvort sem þau eru í fylgd manna eða ekki. Verði dýr fyrir ökutæki ber stjórnanda þess að stöðva það strax og líkna dýrinu eftir því sem tök eru á. Skal hann tilkynna um atvikið til eiganda, umráðamanns, lögreglunnar, dýralæknis eða til næsta bæjar þegar í stað.


11. gr.


     Ef dýr villast frá heimilum sínum, úr girðingum eða heimahögum skulu eigendur eða umráðamenn þeirra þegar gera ráðstafanir til að handsama þau. Lögreglan getur tekið slík dýr í vörslur sínar. Þegar sauðfé á í hlut skal auk fyrirmæla í lögum um búfjárhald fara að reglum laga um afréttamál og fjallskil.

12. gr.


     Við flutning á dýrum skal þess gætt að útbúnaður farartækis sé góður og við hæfi hverju sinni.
     Umhverfisráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um flutning á dýrum.

III. KAFLI


Sérstakt dýrahald í atvinnuskyni, annað en í landbúnaði.


13. gr.


     Sérstakt leyfi þarf til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra umfram það sem telst til venjulegs gæludýrahalds og ekki fellur undir búfjárhald. Einnig þarf sérstakt leyfi til að setja á stofn hvers konar dýragarða, dýrasýningar eða dýrahappdrætti. Sérstakt leyfi þarf einnig til veiða villtra dýra fyrir dýragarða eða önnur söfn lifandi dýra hérlendis eða fyrir erlenda aðila.
     Óheimilt er að temja dýr til sýnis almenningi eða taka af þeim kvikmyndir ef það veldur þeim sársauka eða ótta.
     Leyfi skv. 1. mgr. veitir viðkomandi lögreglustjóri að fengnu áliti dýraverndarráðs.
     Umhverfisráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um leyfisveitingar skv. 1. mgr. og getur bundið leyfi þeim skilyrðum sem nauðsynleg þykja til að tryggja hæfilega meðferð dýranna, svo sem um aðbúnað þeirra, umhirðu, vistarverur og eftirlit með starfseminni. Undanþegnar eru sýningar samkvæmt búfjárræktarlögum.

IV. KAFLI


Aðgerðir á dýrum og aflífun.


14. gr.


     Dýralæknum er einum heimilt að framkvæma læknisaðgerðir á dýrum. Undanþegnar eru þó lyfjagjafir í samráði við dýralækni.
     Þegar aðgerð á dýrum er sársaukafull skal ávallt nota deyfilyf eða svæfingu.
     Dýralæknum einum er heimilt að gelda dýr með þeim undantekningum sem settar verða í reglugerð.
     Umhverfisráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um læknisaðgerðir á dýrum. Skal þar m.a. kveðið á um lyfjagjöf, geldingar sem framkvæmdar eru af öðrum en dýralæknum og aðgerðir sem óheimilt er að framkvæma á dýrum án læknisfræðilegra ástæðna..Þar skal einnig setja fyrirmæli um erfðatæknilegar aðgerðir á dýrum, notkun hormóna eða annarra efna, sem ætlað er að hafa áhrif á eiginleika dýra í öðrum tilgangi en að fyrirbyggja eða lækna sjúkdóma og ræktun dýra er getur leitt til þjáninga fyrir þau eða haft áhrif á eðlilega hegðun.

15. gr.


     Sláturdýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti og án þess að önnur dýr verði þess vör. Dýr skulu ávallt svipt meðvitund áður en blóðtæming fer fram. Að öðru leyti ber að fara að fyrirmælum laga um meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum eftir því sem við á.

V. KAFLI


Dýraveiðar.


16. gr.


     Skylt er veiðimönnum að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa dýr sem þeir hafa veitt áverka.
     Um veiðar einstakra dýrategunda skal fara að fyrirmælum laga um landspendýr og annarra sérlaga.

VI. KAFLI


Tilraunir á dýrum.


17. gr.


     Óheimilt er að nota dýr við tilraunir, rannsóknir, framleiðslu eða prófun lyfja og sjúkdómsgreiningu. Ef nauðsynlegt er talið að nota þurfi lifandi dýr við slíkt og ekki eru þekktar aðrar leiðir til að ná sama árangri getur umhverfisráðherra veitt sérstaka undanþágu frá þessu ákvæði. Gæta skal þess við tilraunir á dýrum að þær baki þeim ekki meiri þjáningar en óhjákvæmilegt er.
     Undanþegnar banni þessu eru viðurkenndar rannsóknastofnanir. Við slíkar tilraunir skal þó ætíð gæta fyllstu dýraverndarsjónarmiða.
     Umhverfisráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um meðferð tilraunadýra, annarra en búfjár. Skal þar kveðið á um eftirlit dýralækna með tilraunum með dýr.

VII. KAFLI


Skipan dýraverndarmála.


18. gr.


     Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn allra mála er varða dýravernd.
     Ráðherra til aðstoðar er dýraverndarráð sem umhverfisráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Í ráðinu eiga sæti fimm menn. Einn er tilnefndur af Búnaðarfélagi Íslands, einn af Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, einn af Dýralæknafélagi Íslands og einn af sambandi dýraverndarfélaga. Umhverfisráðherra skipar einn mann í ráðið án tilnefningar og er hann jafnframt formaður. Í öllum tilfellum skal skipa annan mann til vara samkvæmt tilnefningu framangreindra félaga og sambanda. Ráðið kýs sér varaformann.
     Tillagna eða umsagna dýraverndarráðs skal leita við setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla um dýravernd. Ráðinu ber að gera tillögur til ráðherra um allt það sem horfir til framdráttar dýravernd í landinu. Dýraverndarráð skal láta dýraverndarnefndum, löggæslumönnum, ákæruvaldi og dómstólum í té umsagnir um málefni er varða dýravernd.
     Kostnaður vegna starfsemi dýraverndarráðs greiðist úr ríkissjóði.

19. gr.


     Í hverju dýralæknishéraði skal skipa sérstaka dýraverndarnefnd. Umhverfisráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um skipan nefnda þessara og val manna í þær. Hann setur nefndunum starfsreglur. Ráðherra getur ákveðið að fela heilbrigðisnefndum verkefni dýraverndarnefnda í fámennum umdæmum ef heppilegt þykir.
     Dýraverndarnefndir skulu vera almenningi til ráðuneytis í dýraverndarmálum og vera löggæslumönnum til aðstoðar við eftirlit með lögunum.

VIII. KAFLI


Eftirlit með framkvæmd laganna og viðurlög.


20. gr.


     Nú leikur grunur á að meðferð á dýrum brjóti gegn lögum og ber þá þeim sem þess verða varir að tilkynna það til lögreglu í viðkomandi umdæmi, héraðsdýralæknis, dýraverndarnefndar eða dýraverndarráðs.
     Við eftirlit með lögum þessum hefur dýraverndarnefnd að fenginni heimild viðkomandi lögreglustjóra rétt til að fara á hvern þann stað innan umdæmis síns þar sem dýr eru höfð og kanna aðstæður þeirra og aðbúnað.
     Dýraverndarnefnd getur tekið dýr úr vörslu eigenda eða umsjónarmanns sé um að ræða alvarlegt brot á dýraverndarlögum eða reglugerðum sem settar eru með stoð í þeim. Ber að tilkynna slíkar aðgerðir til lögreglustjóra þegar í stað. Lögreglustjóri getur í framhaldi af því, að tillögu dýraverndarnefndar og að fenginni umsögn dýralæknis, ákveðið að leggja hald á dýrin þar til úrbætur hafa verið gerðar eða dómur fallið. Viðkomandi sveitarstjórn er skylt að útvega geymslustað, fóður og umhirðu fyrir dýrin á kostnað eiganda eða umsjónarmanns. Sé þess ekki kostur skal lögreglustjóri láta bjóða þau upp og selja til lífs eða slátrunar.
     Ef um minni háttar brot er að ræða getur dýraverndarnefnd lagt fyrir eiganda eða umsjónarmann dýranna að bæta úr innan tiltekins tíma. Láti eigandi ekki skipast við tilmælin má beita þeim úrræðum sem mælt er fyrir um í 3. mgr. Lögreglustjóri getur í slíkum tilvikum lagt á dagsektir eða fyrirskipað úrbætur á kostnað viðkomandi. Endurkröfur vegna þessara útgjalda eru lögtakskræfar.

21. gr.


     Brot gegn lögum þessum, reglum eða reglugerðum, sem settar eru með stoð í þeim, varða sektum eða varðhaldi. Ef brot er stórfellt eða ítrekað getur það varðað fangelsi allt að tveimur árum.
     Brot dýralæknis á ákvæðum laganna varðar að auki sviptingu leyfis til dýralækninga ef brot er ítrekað.
     Hlutdeild í brotum og tilraun til brota á lögum þessum er refsiverð.

22. gr.


     Nú hefur maður gerst sekur um stórfellt eða ítrekað brot á lögum þessum eða reglugerðum sem settar eru með stoð í þeim og er þá unnt að svipta hann heimild til að hafa dýr í umsjá sinni, versla með þau eða sýsla með þau með öðrum hætti. Heimildasvipting getur lotið að dýrum almennt eða einstökum tegundum og staðið tiltekið tímabil eða ævilangt. Heimildasviptingu má beita gagnvart ósakhæfum manni. Ákæruvaldið getur haft uppi kröfu um heimildasviptingu í refsimáli eða sérstöku máli á hendur sakborningi. Aðili, sem sviptur er heimild samkvæmt þessari málsgrein og skeytir ekki ákvæði dóms um heimildasviptingu, skal sæta sektum.

23. gr.


     Foreldrum eða öðrum forráðamönnum barna er skylt að stuðla að því að börn, sem þau hafa forráð fyrir, hlýðnist fyrirmælum þessara laga. Nú fremur barn yngra en 15 ára brot á lögum þessum og brotið er framið með vitund foreldra eða forráðamanna og skal þeim þá refsað fyrir brotið ef sannað er að þeir hafi vanrækt að koma í veg fyrir það.

24. gr.


     Um rannsókn og meðferð mála út af brotum á lögum þessum fer samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála.

IX. KAFLI


Brottfallin lög og gildistaka


25. gr.


     Umhverfisráðherra setur reglugerðir samkvæmt lögum þessum. Reglugerðir og aðrar stjórnvaldsreglur um dýravernd, sem settar hafa verið fyrir gildistöku laga þessara, halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þær brjóta ekki í bága við þau uns nýjar reglur hafa verið settar.
     Lög þessi öðlast gildi þremur mánuðum eftir að þau hafa verið birt. Frá sama tíma eru numin úr gildi eftirtalin lög og reglugerðir:
     Lög nr. 21/1957, um dýravernd.
     Lög nr. 38/1968, um breytingu á lögum nr. 21/1957, um dýravernd.
     Lög nr. 123/1935, um gelding húsdýra.
     Reglugerð nr. 77/1973 um notkun dýra í vísindalegum tilgangi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


     Aðdragandi frumvarps þessa er orðinn all langur. Með bréfi dags. 26. febrúar 1974 fól menntamálaráðherra þáverandi dýraverndarnefnd að endurskoða lög um dýravernd, nr. 21/1957, með síðari breytingum. Hinn 18. september 1981 skiluðu meiri og minni hluti nefndarinnar hvor sínu frumvarpi ásamt greinargerðum. Hvorugt þessara frumvarpa var lagt fram. Hinn 28. mars 1983 fól menntamálaráðherra þá nýlega skipaðri dýraverndarnefnd að fjalla að nýju um fyrrgreind frumvörp og semja nýtt. Aftur skilaði nefndin frumvarpi í maí 1986. Þetta frumvarp var sent til umsagnar ýmissa aðila og voru í framhaldi af því gerðar á því ýmsar lagfæringar.
     Með lögum nr. 47/1990 voru dýraverndarmálefni lögð til umhverfisráðuneytisins. Hinn 10. desember 1990 barst umhverfisráðuneytinu svo síðasta útgáfa dýraverndarnefndar af frumvarpinu og er það nokkuð breytt frá því sem er gert ráð fyrir í frumvarpinu frá 1986. Síðan þá hafa tillögur dýraverndarnefndar verið til meðferðar í umhverfisráðuneytinu. Sú gerð frumvarpsins sem hér liggur fyrir tekur í öllum aðalatriðum mið af tillögum dýraverndarnefndar frá 10. desember 1991, greinargerð dýraverndarnefndar með frumvarpinu frá 14. maí 1986 og athugasemdum einstakra aðila sem fengið hafa málið til umsagnar.
     Núgildandi lög um dýravernd eru lög nr. 21/1957, sbr. lög nr. 38/1968, um breytingu á þeim lögum. Helstu breytingarnar sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir varða stjórn dýraverndarmála og virkara eftirlit með framkvæmd laganna. Þær eru þessar:
    1.     Sett verði á stofn sérstakt dýraverndarráð sem tekur til landsins alls. Ráðið kemur í stað dýraverndarnefndar samkvæmt núgildandi lögum. Hlutverk þess er sambærilegt hlutverki nefndarinnar.
    2.     Settar verði á stofn dýraverndarnefndir í héruðum landsins til að auka og tryggja eftirlit með framkvæmd laganna. Svæðaskipting tekur mið af skiptingu landsins í dýralæknishéruð. Dýraverndarnefndum er fengið vald til að grípa til vissra aðgerða vegna illrar meðferðar á dýrum.
     Auk þessara meginbreytinga eru gerðar ýmsar breytingar á einstökum ákvæðum og þau gerð um margt ítarlegri en samsvarandi ákvæði núgildandi laga. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við einstakar greinar frumvarpsins.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Ákvæðið er nýmæli. Þar er gildissvið laganna afmarkað. Lögin taka til allra dýra. Eðlilegt er þó að leggja áherslu á þau dýr sem eru í vörslu manna eða umsjá.

Um 2. gr.


     Greinin samsvarar 1. gr. núgildandi laga.

Um 3. gr.


     Greinin svarar til 2. gr. núgildandi laga en er nokkuð ítarlegri.

Um 4. gr.


     Ákvæði í 1. mgr. er nýmæli og er einkum ætlað að taka til verksmiðjubúskapar þar sem störf eru í ríkum mæli vélvædd, svo sem í búskap með hænsnfugla, svín, kálfa, loðdýr og fiska. Eftir því sem vélvæðing er meiri er beint eftirlit með líðan einstakra dýra minni. Því er þörf á að setja bein fyrirmæli í lög til að tryggja slíkt eftirlit.
     Í 2. mgr. er gert ráð fyrir að dýralæknir eða dýraverndarráðunautur skoði og samþykki vistarverur sem ætlaðar eru dýrum.

Um 5. gr.


     Greinin skýrir sig sjálf.

Um 6. gr.


     Í 3. mgr. er umhverfisráðherra veitt heimild til að setja í reglugerð nánari fyrirmæli um aðbúnað dýra og umhirðu. Heppilegt væri að slíkar reglur yrðu settar í nánu samstarfi við landbúnaðarráðuneytið og þar kveðið skýrt á um verkaskiptingu ráðuneytanna í þessu efni.

Um 7. gr.


     Greinin samsvarar 3. gr. núgildandi laga um dýravernd. Lagt er fyrir umhverfisráðherra að setja í reglugerð nánari fyrirmæli um bönn samkvæmt þessari grein.

Um 8. gr.


     Greinin samsvarar 5. gr. núgildandi laga. Fellt er burt sérákvæði um eyrnamörkun á fé, enda gildir almenna ákvæðið eftir sem áður um mörkun sauðfjár.

Um 9. gr.


     Greinin samsvarar 6. og 16. gr. núgildandi laga.

Um 10. gr.


     Greinin er nýmæli í lögum um dýravernd og kemur til af því hversu algengt það er að skepnur verði fyrir ökutækjum. Hliðstætt ákvæði er í 1. mgr. 10. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987.

Um 11. gr.


     Eðlilegt þykir að leggja þá skyldu á herðar eigendum og umsjónarmönnum að þeir geri þegar ráðstafanir til að hafa upp á dýrum sem villast frá heimkynnum sínum. Það er áréttað að sérreglur um skil á sauðfé samkvæmt lögum um afréttamál og fjallskil ganga framar þessu ákvæði.

Um 12. gr.


     Greinin samsvarar 7. gr. núgildandi laga. Gert er ráð fyrir að umhverfisráðherra setji í reglugerð nánari fyrirmæli um flutning á dýrum.

Um 13. gr.


     Greinin samsvarar að verulegu leyti 4. gr. núgildandi laga, en er nokkuð ítarlegri.

Um 14. gr.


     Greinin svarar til 10. og 11. gr. núgildandi laga. Tekið er fram að ekki þurfi dýralækni til að framkvæma inndælingar með viðurkenndum lyfjum. Ákvæði um aðgerðir án læknisfræðilegra ástæðna eru ítarlegri og felld er niður undanþága til að stýfa rófu af hvolpum, enda mun slíkum aðgerðum að mestu hætt. Nýmæli er að dýralæknum einum skuli heimilt að gelda dýr. Jafnframt er dýralæknum gert skylt að nota deyfilyf eða svefnlyf við allar sársaukafullar aðgerðir.

Um 15. gr.


     Greinin samsvarar að mestu 9. gr. núgildandi laga, en er nokkuð ítarlegri.

Um 16. gr.


     Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 17. gr.


     Greinin svarar til 12. og 13. gr. núgildandi laga, sbr. lög nr. 38/1968. Helsta breytingin frá núgildandi lögum er að bann við tilraunum með dýr er ekki bundið við að samfara tilraununum séu sérstakar aðgerðir á dýrunum, svo sem blóðtaka eða inndæling eða aðrar aðgerðir sem til þess eru fallnar að vekja ótta eða þjáningu. Með þessu er hert á banni við notkun lifandi dýra við tilraunir.

Um 18. gr.


     Greinin svarar til 17. gr. núgildandi laga. Lagt er til að í stað dýraverndarnefndar komi dýraverndarráð, til aðgreiningar frá dýraverndarnefndum sem áformað er að skipa skv. 19. gr. Hlutverk dýraverndarráðs er sambærilegt hlutverki dýraverndarnefndar samkvæmt núgildandi lögum. Fellt er niður ákvæði um að störf dýraverndarnefndar skuli vera ólaunuð. Þetta er eðlilegt þar sem í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir auknu starfi þess frá því sem verið hefur. Að öðru leyti er vísað til almennra athugasemda varðandi þessa grein.

Um 19. gr.


     Stofnun dýraverndarnefnda er nýmæli. Eðlilegt sýnist að miða við að ein dýraverndarnefnd starfi í hverju dýralæknishéraði, eins og þau eru afmörkuð í lögum nr. 77/1981. Þetta er liður í því að bæta og auka eftirlit með framkvæmd laganna.

Um 20. gr.


     Greinin svarar til 14. gr. núgildandi laga. Í 1. mgr. er lögð sú skylda á alla sem verða varir við illa meðferð á dýrum að tilkynna það til viðkomandi aðila. Í 2.,3. og 4. mgr. er mælt fyrir um heimildir dýraverndarnefnda og lögreglustjóra til að grípa til aðgerða vegna brota á lögunum.

Um 21. gr.


     Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 22. gr.


     Greinin samsvarar 19. gr. núgildandi laga.

Um 23. gr.


     Greinin samsvarar 20. gr. núgildandi laga.

Um 24. gr.


     Greinin samsvarar 22. gr. núgildandi laga.

Um 25. gr.


     Greinin þarfnast ekki skýringa.