Ferill 29. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 29 . mál.


Ed.

985. Breytingartillögur



við frv. til l. um vernd barna og ungmenna.

Frá menntamálanefnd.



     Við 3. gr. Eftirtaldar breytingar verði á greininni:
         
    
     Fyrri málsgrein verði tvær málsgreinar þannig að 1. málsl. verði 1. mgr. og 2. 7. málsl. verði 2. mgr.
         
    
     Síðasti málsliður síðari málsgreinar orðist svo: Það skal annast fræðslustarfsemi fyrir þá sem starfa að barnaverndarmálum, m.a. með útgáfustarfsemi og námskeiðum.
     Við 4. gr. Í stað orðanna „og hátterni“ í 1. efnismálsl. 2. mgr. komi: hátterni og uppeldisskilyrðum.
     Við 6. gr. Eftirtaldar breytingar verði á greininni:
         
    
     Á eftir 2. málsl. 1. mgr. komi: Þá skal sveitarstjórn heimilt að að semja um svæðisbundið samstarf með öðrum hætti en að framan greinir með leyfi félagsmálaráðherra.
         
    
     Í stað orðanna „að fengnu leyfi félagsmálaráðherra“ í lok 1. mgr. komi: og í þeim tilvikum skal gæta þeirra sjónarmiða sem nefnd eru í 3. mgr. um kjör barnaverndarnefnda.
         
    
     Orðin „t.d. barnalækni, sálfræðing eða félagsráðgjafa“ í niðurlagi 3. mgr. falli brott.
     Við 7. gr. Fyrri málsliður fyrri málsgreinar orðist svo: Kjörtímabil barnaverndarnefnda er hið sama og sveitarstjórna.
     Við 10. gr. Eftirtaldar breytingar verði á greininni:
         
    
     Á eftir orðinu „héraðsnefndar“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: sveitarstjórnar.
         
    
     Orðin „svo og leita til sérfræðinga í einstökum málum“ í lok 2. mgr. falli brott.
     Við 12. gr. Annar málsliður fyrri málsgreinar falli brott.
     Við 17. gr. Við greinina bætist ný málsgrein svohljóðandi:
                   Barnaverndarnefnd er skylt að tilkynna foreldri barns ef mál, er varðar barnið, er til meðferðar hjá lögreglu eða dómstólum, sbr. 1. og 2. mgr., enda mæli hagsmunir barnsins ekki gegn því. Óski foreldri eftir því að vera viðstatt yfirheyrslu yfir barni sínu yngra en 16 ára skal það að jafnaði heimilt. Dómari úrskurðar um þetta atriði ef ágreiningur verður og sætir úrskurður hans ekki kæru.
     Við 19. gr. Í stað orðsins „dagvistastofnana“ í 1. mgr. og í stað sama orðs í 3. mgr. komi (í viðeigandi beygingarföllum): dagvistarheimila.
     Við 20. gr. Í stað orðsins „laga“ í 1. málsl. komi: barnalaga.
     Við 21. gr. Orðið „ástæðulausrar“ í lok b-liðar 1. mgr. falli brott.
     Við 23. gr. Eftirtaldar breytingar verði á greininni:
         
    
     Á eftir orðinu „börn“ í 1. málsl. komi: og ungmenni.
         
    
     Í stað orðanna „hefur rökstuddan grun um“ í 1. málsl. komi: telur.
         
    
     Orðin „en tólf mánuði þaðan í frá“ í lok 2. málsl. falli brott.
     Við 25. gr. Í stað orðsins „sínum“ í 3. mgr. komi: þess.
     Við 26. gr. Orðin „eða aðfinnslur“ í seinni málsgrein falli brott.
     Við 28. gr. Í stað orðsins „reyndar“ í fyrri málslið síðari málsgreinar komi: fullreyndar.
     Við 30. gr. Í stað orðanna „ef þörf krefur“ í niðurlagi 3. mgr. komi: svo lengi sem þörf krefur.
     Við 33. gr. Í stað orðsins „þjálfa“ í upphafi seinni málsgreinar komi: aðstoða.
     Við 35. gr. Í stað orðanna „þrefaldan barnalífeyri sé það innan sjö ára aldurs og tvöfaldan sé það eldra“ í 1. mgr. komi: umsaminn lífeyri.
     Við 36. gr. Eftirtaldar breytingar verði á greininni:
         
    
     Í stað orðsins „barni“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: barninu.
         
    
     Í stað orðanna „er skylt“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: ber.
     Við 43. gr. Í stað orðanna „í níu mánuði eða lengur“ í 3. málsl. 1. mgr. komi: til frambúðar.
     Við 46. gr. Í stað orðanna „einkaheimili eða barnaheimili“ í 4. mgr. komi: einkaheimili, barnaheimili eða annan þann stað þar sem börn dveljast.
     Við 47. gr. Í stað orðanna „hafi gert sér fulla grein“ komi: hafi verið gerð full grein.
     Við 50. gr. Í stað orðanna „innan tveggja vikna“ í lok 1. málsl. komi: án tafar og eigi síðar en innan viku.
     Við 54. gr. 4. mgr. orðist svo:
                   Barnaverndarnefndir, ein eða fleiri saman, skulu hafa tiltæk úrræði með rekstri vistheimila eða á annan hátt til að veita börnum viðtöku vegna aðstæðna á heimili þeirra, svo sem vegna forfalla foreldra, vanrækslu eða illrar meðferðar á barni eða til könnunar á aðstæðum þeirra, sbr. 21. gr.
     Við 60. gr. bætist: Sveitarstjórnir geta þó breytt þessum aldursmörkum og tímasetningum með sérstakri samþykkt.