Stjórnarskipunarlög
Fimmtudaginn 16. maí 1991


     Forseti (Karl Steinar Guðnason) :
    Forseti taldi rétt að fara að ósk frsm. málsins, enda hafði hann jafnframt heyrt það að samráðsnefndin ætlaðist til þess að bæði mál yrðu rædd samtímis. Því gerði ég ekki athugasemd við það þó menn flökkuðu til og frá um málaflokkana, enda er það ekki ótítt að menn geri það hér í deildinni.