Auglýsingakostnaður fjármálaráðuneytis

80. fundur
Fimmtudaginn 13. febrúar 1992, kl. 11:46:00 (3465)

     Fyrirspyrjandi (Árni M. Mathiesen) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson sakaði mig hér í ræðu áðan um það að vera með ómerkilegan pólitískan áróður. Ég get ekki séð annað en að þær umræður sem hér hafa farið fram og þær upplýsingar sem hafa komið fram og hvaða afstöðu einstakir menn hafa tekið hafi leitt í ljós að fullt tilefni var til þessarar fyrirspurnar og fullt tilefni til þess að við skoðum þessi mál mjög gaumgæfilega og förum varlega í framtíðinni, förum alla vega varlegar en hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur farið á undanförnum árum.