Svavar Gestsson :
Virðulegi forseti. Ég styð þessa tillögu vegna þess að hún er sjálfsögð. Það er búið að eyða öllum peningum úr Framkvæmdasjóði fatlaðra hvort eð er á árinu 1992 og það væri verið að gefa fötluðum ranga mynd af veruleikanum ef þessi tillaga yrði felld. Þess
vegna segi ég já við tillögunni.