Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 375 . mál.


611. Tillaga til þingsályktunar



um flutning á starfsemi Landhelgisgæslunnar.

Flm.: Árni R. Árnason.



    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að láta athuga kosti þess að flytja höfuðstöðvar og starfsemi Landhelgisgæslunnar til Keflavíkur. Verði niðurstaða hennar jákvæð hefji ráðherra þegar undirbúning að flutningnum.

Greinargerð.


    Á undanförnum vikum og mánuðum hefur orðið mikil umræða um björgunarstarf Landhelgisgæslunnar í framhaldi af samþykktum Alþingis um kaup á nýrri björgunarþyrlu. Við undirbúning ríkisstjórnar og dómsmálaráðherra að framkvæmd þessara samþykkta er fjallað um rekstrarskipulag gæslunnar og um samstarf hennar við björgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
    Hlutverk Landhelgisgæslunnar í björgunarstarfi við strendur landsins hefur ávallt verið mikið og mikilvægt. Með tilkomu þyrlureksturs gæslunnar hefur það vaxið og jafnframt náð til björgunar- og leitarstarfa á hálendi og í óbyggðum. Hlutverk hennar í björgunarstarfi hefur vaxið svo að það er nú einn veigamesti þátturinn í starfsemi hennar. Er því nauðsynlegt að við athugun á rekstrarskipulagi hennar og starfsemi verði brugðið ljósi á það hvar henni verði best valinn staður til frambúðar með tilliti til björgunarstarfa hér á landi og hins mikilvæga hlutverks sem hún gegnir í þeim.
    Margt mælir með staðsetningu í Keflavík og verður hér á eftir gerð grein fyrir nokkrum atriðum:
—    Höfnin Keflavík-Njarðvík er allstór og vaxandi. Á Suðurnesjum eru fiskihafnir í öllum sveitarfélögunum sjö. Í Grindavík og Sandgerði eru stórar fiskiskipahafnir og er mikil útgerð stunduð þaðan.
—    Keflavíkurflugvöllur er best búni flugvöllur landsins, raunar einn af best búnu og öruggustu flugvöllum við norðanvert Atlantshaf. Nálægð hans við stóran hluta af fiskihöfnum landsins og siglingaleiðir að og frá þeim er ákjósanlegur kostur í björgunarstarfinu.
—    Á Keflavíkurflugvelli er starfrækt björgunarsveit varnarliðsins og hefur hún yfir mun betri tækjum að ráða en við Íslendingar. Sveitin ræður yfir fleiri björgunarþyrlum en við, en einnig ræður varnarliðið yfir einstæðri tækni til eldsneytistöku á flugi. Rætt er um aukið og nánara samstarf Landhelgisgæslunnar við sveitina. Einnig kemur til álita að Íslendingar taki að sér umtalsverð verkefni í starfi björgunarsveitar varnarliðsins, t.d. í björgunar- og leitarfluginu, sem mundi auðvelda samskiptin við íslenska aðila. Þá er álitsvert að stofna ásamt varnarliðinu til alþjóðlegrar björgunarsveitar sem hafi aðsetur á Íslandi og sinni þaðan björgunar- og leitarstörfum langt út frá landi og til fjalla um landið allt.
—    Á Keflavíkurflugvelli rís nú þjónustumiðstöð Flugleiða við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þangað mun félagið flytja allt viðhald á flugflota sínum, svo og á þeim flota Landhelgisgæslunnar sem það annast viðhald á. Með því verður á Keflavíkurflugvelli mjög góð og öflug aðstaða til að veita flugrekstri af því tagi, sem gæslan viðhefur, alla nauðsynlega þjónustu.
—    Keflavíkurflugvöllur er eini alþjóðaflugvöllur landsins. Hann gegnir lykilhlutverki í samgöngum um norðanvert Atlantshaf, m.a. með starfrækslu flugstjórnarmiðstöðvar fyrir afar stór hafsvæði. Öryggismál þessara samgangna, t.d. leitar- og björgunarstarfsemi, hljóta að hvíla á herðum Íslendinga.
—    Á Keflavíkurflugvelli hafa Íslendingar gegnt stóru hlutverki í öryggismálum varnarliðsins, m.a. með því að stjórna og manna slökkvilið vallarins sem mikið orð fer af. Eðlilegt framhald þessa væri vaxandi þátttaka Íslendinga í starfi að fleiri öryggisþáttum og er björgunar- og leitarstarf rökrétt framhald.
—    Að lokum er æskilegt að kanna eftir föngum kosti og ókosti þess að staðsetja stjórnsýslu- eða löggæslustofnanir á borð við Landhelgisgæslu Íslands utan höfuðborgarsvæðisins og þá út frá fjárhagslegum og faglegum sjónarmiðum varðandi þá starfsemi sem í hlut á, svo og út frá sjónarmiðum byggðastefnu. Í því sambandi er sérstök ástæða til að skoða með gagnrýni mikilvægi eða nauðsyn þess að slíkar stofnanir starfi einungis á höfuðborgarsvæðinu.