Forseti (Pálmi Jónsson)
:
Forseti vill fara fram á það að við getum senn haldið áfram samkvæmt dagskrá. Enn eru tveir á mælendaskrá sem óska að ræða gæslu þingskapa. Áður en þessum fundi lýkur yrði síðan tekið til athugunar af hálfu formanna þingflokka og í samráði við forseta hvort unnt verður að breyta þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið í þá veru að haldið yrði áfram í kvöld og eitthvað fram eftir nóttu til þess að losa morgundaginn, en það gefist þá tóm til slíkra ákvarðana áður en þessum fundi verði lokið.